Stórleikur Durant dugði Golden State ekki til Kristinn Páll Teitsson skrifar 25. desember 2016 22:15 LeBron og Curry í kvöld. Vísir/getty
Kevin Durant átti sannkallaðan stórleik í fyrsta leik sínum gegn Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í kvöld en þrátt fyrir það fögnuðu Cleveland-menn sigri á heimavelli 109-108. Var þetta í fyrsta sinn sem liðin mættust frá því að Cleveland vann NBA-meistaratitilinn í leik sjö í Oakland síðasta vor. Hafa liðin mæst í úrslitum tvö ár í röð. Golden State var með frumkvæðið framan af og leiddi eftir alla fyrstu þrjá leikhlutana en undir lok fjórða leikhluta reyndust taugar heimamanna sterkari. Cleveland leiddi aðeins í 41 sekúndu í leiknum en náði forskotinu þegar leikurinn var að klárast og hélt það út. LeBron James var stigahæstur í liði Cleveland með 31 stig ásamt því að taka 13 fráköst en LeBron, Kevin Love og Kyrie Irving voru með 76 af 109 stigum liðsins. Í liði Golden State var það Durant sem fór fyrir liðinu með 36 stig og 15 fráköst en hann lauk leiknum án þess að tapa boltanum. Besti leikmaður deildarinnar undanfarin tvö ár, Steph Curry, náði sér ekki á strik en hann hitti úr tveimur af sjö þriggja stiga skotum sínum í leiknum.Derrick Rose horfir á eftir boltanum í kvöld.Visir/gettyÍ fyrri leik dagsins hafði Boston Celtics betur í Madison Squere Garden gegn New York Knicks 119-114. Góður annar leikhluti gerði það að verkum að Boston leiddi með tíu stigum í hálfleik en New York vann þrjá leikhluta af fjórum. Isaiah Thomas var stigahæsti maður Boston með 27 stig en Carmelo Anthony var atkvæðamestur í lið heimamanna með 29 stig.
NBA Mest lesið Elsti maraþonhlaupari sögunnar varð fyrir bíl og lést Sport Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Fótbolti „Það var engin taktík“ Fótbolti Trump fékk alvöru bikarinn en Chelsea aðeins eftirlíkingu Fótbolti „Labbar ekki inn í líkamsrækt og byrjar að sprauta í þig sterum“ Sport Toone með sögulega fullkomna tölfræði Fótbolti Raggi Nat á Nesið Körfubolti Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Körfubolti Dagskráin í dag: Blikar berjast fyrir lífi sínu í Meistaradeildinni Sport Endaði á sjúkrahúsi eftir árás frá kú Sport Fleiri fréttir Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Sjá meira