MS enn í einelti Ögmundur Jónasson skrifar 20. júlí 2016 07:00 Samkeppniseftirlitið hefur frá því sú stofnun varð til, haft hin meira en lítið vafasömu Bændasamtök í sigti. Frægt varð þegar samtökin voru sektuð fyrir að leyfa umræðu um afkomu bænda og verðlagsmál á þingi sínu. Slíkt flokkaðist að mati eftirlitsins undir verðsamráð sem á að vera alveg bannað þegar bændur eiga í hlut. Við hljótum að bíða þess að verkalýðssamtökunum, sem Margaret Thatcher, járnfrúin breska, kallaði verstu einokunarfyrirbæri samfélagsins, verði sektuð fyrir að efna til funda um hvernig megi samræma kröfur um verð fyrir launavinnu. Minna hefur farið fyrir gagnrýni Samkeppnisstofnunar á þann hluta verðmyndunar landbúnaðarafurða sem á sér stað þegar komið er inn fyrir dyr stóru verslanakeðjanna. Í seinni tíð hefur Mjólkursamsalan, MS, tekið við hlutverki hins illa og er nú nánast í einelti að því ég fæ best séð.Að skila árangri En hverjar eru staðreyndirnar? Á Íslandi eru um 660 kúabændur. Þessir 660 einyrkjar hafa komið sér sameiginlega upp samvinnu um fyrirtæki sem heitir MS til að annast milligöngu og vinna afurðir á eins hagkvæman og ódýran máta og mögulegt er fyrir sjálfa sig og neytendur. Að neytendahliðinni hafa fulltrúar launafólks komið, í gegnum verðlagsnefndir til að ákveða verð á þessum afurðum. Með öðrum orðum, þetta eru lausnir sem byggja á samlegð og samvinnu. Þessi úrræði samvinnu- og jafnaðarsamfélagsins er mörgum þyrnir í auga, sennilega fyrst og fremst af pólitískum ástæðum. Ég leyfi mér hins vegar að spyrja hvort ekki sé rétt að taka niður kreddugleraugun og skoða þetta mál út frá praktískum forsendum og þá fyrst og fremst hagsmunum þeirra sem mest eiga undir því komið að verð á hollustumatvælum sé þeim viðráðanlegt.Enn um staðreyndir Fyrirkomulagið sem mjólkurbændur hafa komið á varð ekki til í lagalegu tómarúmi því það hvílir innan lagaumgjarðar, sem sérstaklega var sniðin til að reyna að knýja fram hagræðingu í greininni neytendum og bændum til hagsbóta. Það hefur tekist. Mjólk og mjólkurafurðir hafa á síðustu tíu árum lækkað að raunvirði um ríflega 20% og varið hag bændanna líka, náð niður kostnaði um þrjá milljarða á ári, tvo milljarða fyrir neytendur og einn milljarð fyrir bændur. Ef litið er á afkomu fyrirtækjanna í keðjunni frá bændum til neytenda þá hefur afkomu MS verið stýrt með verðlagningu á hráefni og afurðum þannig að hún er rétt liðlega eitt % af veltu í góðu ári, um 300 milljónir af 20 milljarða króna veltu. Hagnaður stærsta smásölurisans, Haga, sem í raun ræður örlögum framleiðslufyrirtækja í matvælaiðnaði, nam um 3,6 milljörðum króna af 76 milljarða veltu. Þetta er munurinn á fákeppnisfyrirtæki á markaði án kvaða og fyrirtæki sem lýtur regluverki og aðhaldi! Á grundvelli samvinnu hefur bændum tekist að koma vinnslu mjólkurafurða í farveg sem svipar til þess sem gerist með grannþjóðum okkar. Bændur í norðanverðri Evrópu og víðar hafa með sér svipaðan félagsskap og Auðhumla er með hér og hafa þeir samvinnurekstur um mjólkurvinnslu. Þetta hefur alls staðar leitt til samþjöppunar heima fyrir. Síðan hefur opnast samkeppnismarkaður innan ESB með mjólkurvörur en einnig þar hefur hið sama orðið uppi á teningnum hvað vinnslustigið áhrærir, samþjöppun á samþjöppun ofan. Heimafélagið er víðast hvar lang fyrirferðarmest þótt sums staðar hafi þeim fyrirtækjum tekist að hasla sér völl utan eigin landamæra. Þannig er Arla, sem fyrst var samvinnufélag danskra og sænskra kúabænda, orðið með stærstu mjólkurvörufyrirtækjum í Bretlandi og Norður-Þýskalandi. Í þessu samhengi er Mjólkursamsalan á Íslandi að sjálfsögðu dvergvaxin en hefur engu að síður vegna skynsamlegrar félags- og lagaumgjarðar og á grundvelli samvinnu tekist vel upp.„Frelsiskreddukjaftæði“ Verðstýring í mjólkuriðnaði hefur verið gagnrýnd á forsendum þess sem Þórarinn Eldjárn rithöfundur hefur að vísu í öðru samhengi, kallað „frelsiskreddukjaftæði“. Verðstýringin hefur gengið út á að tryggja sem ódýrasta mjólk. Fulltrúar verkalýðssamtakanna hafa gengið mjög hart fram gagnvart framleiðendum til að halda verðlagi í skefjum en viðleitni þeirra hefur einnig gengið út á að tryggja hag barnafjölskyldna með því að halda mjólkinni á lágmarksverði með verðmillifærslum á milli vöruflokka. Þetta gengur náttúrlega þvert á heilaga ritningu markaðskreddunnar sem segir að verðlag skuli stjórnast alfarið af framleiðslukostnaði hverrar vörutegundar um sig og engar millifærslur leyfðar. Slíkt sé argasti sósíalismi og truflun á lögmálum markaðarins.Hver er hinn veiki? Þegar þessi mál voru rædd á Alþingi síðastliðinn vetur voru uppi tvenns konar sjónarmið sem þó áttu það sameiginlegt að vilja vernda „hinn veika“. Annars vegar, hinn veikburða á markaði gegn hinum allsráðandi. Síðan voru hin sem skilgreindu hinn veika sem tekjulítið fólk sem tryggja þyrfti sem allra bestar afurðir á viðráðanlegu verði. Ég var í síðari hópnum og er enn.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 20. júlí Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ögmundur Jónasson Mest lesið Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar