Vill binda endi á átök milli Armeníu og Aserbaídsjan Samúel Karl Ólason skrifar 2. apríl 2016 17:28 Vladimir Putin, forseti Rússlands. Vísir/EPA
Vladimir Putin, forseti Rússlands, hefur kallað eftir því að stríðandi fylkingar í Nagorno Karabakh í Aserbaídsjan leggi niður vopn hið snarasta. Tugir eru sagðir vera látnir í einhverjum verstu átökum á svæðinu í tvo áratugi. Aserbaídsjan og Armenía hafa lengi deilt um yfirráð á héraðinu. Það hefur verið í höndum aðskilnaðarsinna sem rekja ættir sínar til Armeníu frá því að síðasta stríði lauk þar 1994. Í raun hófust átökin á níunda áratuginum og urðu þau að stríði við fall Sovíetríkjanna. Um 30 þúsund manns féllu í átökunum, sem enduðu með vopnahléi árið 1994. Báðar fylkingar saka hvorn annan um að hafa rofið vopnahléið sem er þar í gildi. Á vef fréttaveitunnar Tass, sem er rekin af rússneska ríkinu, segir að yfirvöld í Aserbaídsjan saki her Armeníu um að gera stórskotaárás á þorp og bæi á landamærum héraðsins. Armenar segja að hermenn frá Aserbaídsjan hafi hafið sókn inn í héraðið. Armenía segir að 18 hermenn hafi farist í átökunum og Aserbaídsjan segir að tólf hermenn þeirra hafi fallið. Þá hafa borist óstaðfestar fregnir af mannfalli meðal almennra borgara.
Armenía Aserbaídsjan Rússland Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira