DeAndre-reglan orðin að veruleika í NBA-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2016 17:45 DeAndre Jordan. Vísir/EPA
Áhugamenn um NBA-deildina í körfubolta gleyma eflaust ekki í bráð atburðarrásinni í kringum það þegar DeAndre Jordan skipti um skoðun síðasta sumar eftir að hafa gert áður munlegt samkomulag við Dallas Mavericks. Liðsfélagar hans hjá Los Angeles Clippers fjölmenntu heim til hans og sannfærðu miðherjann öfluga um að vera áfram hjá Clippers. Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks, fagnaði því mikið þegar DeAndre Jordan gerði þetta munlega samkomulag við Mavs, en svo hætti Cuban að ná í DeAndre Jordan. Hann svaraði engum símtölum. Nokkrir leikmenn Los Angeles Clippers höfðu þá lokað sig inni með DeAndre Jordan á heimili hans í Houston og áður en Cuban fékk að koma með einhvern mótleik þá var það orðið staðfest að Jordan var búinn að semja aftur við Clippers-liðið. Nú hefur NBA-deildin og leikmannasamtök deildarinnar breytt reglum sínum til þess að minnka möguleikana á öðrum eins farsa í framtíðinni. Fyrirkomulagið hefur verið þannig að 1. júlí mega félög byrja að tala við leikmenn með lausan samning en það má ekki ganga frá samningnum við þá fyrr en tíu dögum síðar. Þessu hefur nú verið breytt, því í sumar má ganga frá samningum strax 6. júlí eða aðeins fimm dögum eftir að félög mega byrja að ræða við leikmenn. Það þarf því ekki að koma mörgum á óvart að NBA-spekingar eru farnir að kalla þetta DeAndre-regluna.
NBA Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira