Sandskeiði, Hellisheiði og Þrengslum lokað vegna veðurs Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 4. desember 2015 20:06 Stórhríð er nánast á öllu Suðurlandi og gríðarlega blint samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Vísir/Vilhelm
Búið er að loka þjóðvegunum um Sandskeið, Hellisheiði og Þrengsli. Stórhríð er nánast á öllu Suðurlandi og gríðarlega blint samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Ekkert verðaveður er í flestum landshlutum og varar Vegagerðin fólk við að vera á ferðinni. Suðurstrandarvegur er fær öllum fjórhjóladrifnum bílum en búið er að loka veginum á milli Hveragerðis og Selfoss. Fyrr í dag var þjóðvegi 1 frá Markarfljóti aðBreiðamerkurlóni lokað. Einnig er búið að loka fyrir umferð á Öxnadalsheiði vegna ófærðar en þar sitja bílar fastir og bíða aðstoðar frá björgunarsveitum sem kallaðar hafa verið á vettvang. Þjóðvegurinn við Hafnarfjall er einnig lokaður fyrir alla umferð vegna hvassviðris og hálku. Veðurstofan varar við stormi, meðalvindi yfir 20 metrum á sekúndu, á landinu í kvöld og mestallan morgundaginn.Færð og aðstæðurHálkublettir eru á stofnbrautum á Höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesbraut en hálka er á Kjalarnesi. Illfært er á Krýsuvíkurvegi. Fróðárheiði er ófær og þungfært er á norðanverðu Snæfellsnesi. Þungfært er einnig á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku Á Vestfjörðum er hvassviðri og skafrenningur eða jafnvel stórhríð víðast hvar og slæm færð. Vonskuveður er einnig á Norðurlandi með skafrenningi og snjókomu. Siglufjarðarvegur og Ólafsfjarðarmúli eru lokaðir vegna snjóflóðahættu. Ófært er bæði á Öxnadalsheiði og Víkurskarði. Stórhríð er víða á Austurlandi og flestir vegir ófærir. Af fjallvegum er aðeins Fagridalur enn fær. Stórhríð er einnig með suðausturströndinni og slæm færð.
Veður Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Innlent Fleiri fréttir Lögreglan leitar að Heklu Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Fagráðið harmar brotthvarf Hildigunnar Icelandair verðmætara í rekstri en partasölu Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Sjá meira