2015 líklega heitasta ár frá upphafi mælinga Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 15. september 2015 20:00 Það gæti því farið svo að hlýnunin verði ákafari á næstu árum. VÍSIR/GETTY
Vegna áhrifa veðurfyrirbærisins El Niño, auk stórfelldrar losunar mannsins á gróðurhúsalofttegundum, er nær öruggt að árið tvö þúsund og fimmtán verður lang hlýjasta árið frá upphafi mælinga. Þessa miklu hækkun má að hluta til rekja til El Niño, náttúrulegs veðurfyrirbæris í austurhluta Kyrrahafsins sem orsakar mikla hlýnun á stóru svæði og með hnattrænum afleiðingum.Svarta línan sýnir hitafrávik það sem af er tvö þúsund og fimmtán. Sérhver mánuður þessa árs hefur rækilega slegið hitamet síðasta árs. Bláu línurnar eru ágiskun um þróun til áramóta. Þær byggja á raunverulegri hitaþróun síðari hluta ársins síðustu hundrað þrjátíu og fimm ára. Samkvæmt þessum upplýsingum er það nálægt því ómögulegt að árið tvö þúsund og fimmtán verði ekki heitasta ár frá upphafi mælinga. Þessa miklu hækkun má að hluta til rekja til El ninjo, náttúrulegs veðurfyrirbæris í austurhluta Kyrrahafsins sem orsakar mikla hlýnun á stóru svæði og með hnattrænum afleiðingum.VÍSIR/VEÐURSTOFA ÍSLANDS/HALLDÓR BJÖRNSSON„El ninjo-ár eru yfirleitt mjög hlý,“ segir Halldór Björnsson, fagstjóri loftslagsrannsókna hjá Veðurstofu Íslands. „Á síðustu árum hafa ekki verið stórir atburðir af þessum toga, samt sem áður höfum við séð nokkur ár þar sem met voru slegin. Það er þá aðallega vegna þess að það er að hlýna í heiminum vegna losunar gróðurhúsalofttegunda. En síðan gerist það í svona ástandi að þú færð öflugan El Niño eins og er að gerast núna og þá leiðir það óhjákvæmilega til þess að það verði metár.“ Þrátt fyrir að hitamet hafi fallið síðustu tíu ár hefur hnattræn hlýnun verið hófleg. „Spurningin er þá þessi: Erum við núna að fara inn í tímabil þar sem hlýnunin verður jafn áköf og hún var fyrir aldamót? Við verðum bara að bíða og sjá.“„Spurningin er þá þess: Erum við núna að fara inn í tímabil það sem hlýnunin verður jafn áköf og hún var fyrir áramót?“VÍSIR/GETTYÞað gæti því farið svo að hlýnunin verði ákafari á næstu árum. Í þessu felast skýr skilaboð til þjóðarleiðtoga heimsins sem munu freista þess að ná alheimssamkomulagi í loftslagsmálum í París í desember. „Það er auðvelt að reikna það út að ef við brennum jarðefnaeldsneyti jafn hratt og við erum að gera, og ætlum samt sem áður að halda hlýnun Jarðar undir tveimur gráðum, þá höfum við ekki mikið meira en 25 ár til stefnu. Við verðum að taka losunina niður á því tímabili,“ segir Halldór og bætir við: „Það verður gríðarlega mikið afrek ef að það tekst.“Halldór bendir á að síðustu vetur hafa verið nokkuð harðir. Afleiðing þess sé að Norður-Atlantshafið er kaldari en það hefur verið lengi. Lægðir sem ganga yfir taka mikinn hita úr hafinu. „Ef við tökum línu frá Nýfundnalandi eða Gíbraltar þá er kalt fyrir norðan hana, alveg upp að Íslandi. Norðan við Ísland er síðan frekar hlýtt. Þetta er eitthvað sem menn velta mikið fyrir sér.“ Þá er útlit fyrir að það kólni nokkuð á ákveðnum svæðum á meðan hitastig hækkar annars staðar. „Bretar hafa áhyggjur af þessu. Þetta er svæði sem er ansi kalt er vestur af Bretlandi og þeir hafa áhyggjur af því að fá kaldari vetur fyrir vikið og þannig eru spár næstu mánuði,“ segir Halldór. „En það verður að taka fram að langtíma spár á þessu svæði eru ekki svo góðar að maður getur farið og tekið stór veðmál út á þær.“
Loftslagsmál Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Steini frá Straumnesi látinn Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Fleiri fréttir Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Sjá meira