Fíkniefnahundar leituðu á nemendum FB á leið í busaferð Atli Ísleifsson og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa 28. ágúst 2015 17:03 Frá aðgerðum lögreglu í dag við FB. vísir
Fíkniefnahundar voru notaðir til að leita á nemendum Fjölbrautarskólans í Breiðholti sem voru á leið í busaferð fyrr í dag. Magnús Ingvason, aðstoðarskólameistari FB, segir að ekkert hafi fundist á nemendunum og að þetta sé einungis gert í forvarnarskyni. „Allir sem ætluðu í ferðina mættu með sinn farangur og allt var í góðu lagi,“ segir Magnús, en skólinn átti sjálfur frumkvæði að aðgerðinni. Magnús segir að þetta hafi ekki verið í fyrsta sinn sem þetta er gert. „Þetta hefur verið gert í eitt og eitt skipti og það eru einhver ár síðan þetta var síðast gert. Þá var leitað hátt og lágt í skólanum hérna. Þá fannst ekki neitt heldur. Við viljum að skólastarfið og skemmtanir á vegum skólans séu algjörlega fíkniefnalausar.“ Aðspurður um hvort nemendur hafi tekið vel í þetta segir Magnús að viðbrögðin hafi alls ekki verið slæm í dag. „Þeir sem eru ekki með fíkniefni mæta bara, það er þefað af töskunum þeirra, ekkert finnst og þetta tekur skamman tíma.“
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira