Bogut: LeBron James stökk sjálfur á myndatökumanninn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júní 2015 17:30 LeBron James í nótt. Vísir/Getty
Eftirminnilegasta atvik fjórða leiks Cleveland Cavaliers og Golden State Warriors í nótt var eflaust það þegar LeBron James fékk stóran skurð á höfuðið eftir samstuð við myndatökumann á endalínunni. Andrew Bogut, ástralski miðherji Golden State Warriors, braut á LeBron James í nótt þegar James missti jafnvægið og endaði með hausinn á myndavél sem var á bak við körfuna. Bogut, sem var settur út úr byrjunarliði Golden State Warriors fyrir leikinn, kom mjög grimmur inn af bekknum og lét finna vel fyrir sér eftir að hann var settur inn á völlinn. Andrew Bogut hreinsaði sig hinsvegar af allri ábyrgð af meiðslum LeBron James, þegar hann var í viðtölum við blaðamann eftir leikinn. „Ég held að hann hafi stokkið sjálfur á myndatökumanninn. Hann lenti og tók síðan tvö skref áður en hann datt á myndatökumanninn. Það er pottþétt að ég ýtti honum ekki svona harkalega," sagði Andrew Bogut. Blaðamaður spurði Bogut þá hreint út hvort að Ástralinn hafi séð þetta svona. „Nei, þannig var þetta. Ef þú skoðar endursýninguna þá sérðu greinilega að hann tekur tvö skref áður en hann dettur. Það er það sem sést á endursýningunni og það er það sem liðsfélagar mínir sáu," sagði Bogut. Hér fyrir neðan má sjá myndband af því þegar LeBron James meiðist eftir samstuðið við Andrew Bogut.Vísir/Getty
NBA Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira