Sjáðu geggjaðan flautuþrist Rose sem felldi LeBron og félaga Anton Ingi Leifsson skrifar 9. maí 2015 10:48 Rose og LeBron. vísir/getty
Chicago Bulls og Los Angeles Clippers komust 2-1 yfir í sínum undanúrslitareinvígum í NBA-körfuboltanum í nótt. Cleveland leikur í Austurdeildinni, en Clippers í Vesturdeildinni. Cleveland og Chicago mættust í mögnuðum leik í nótt. Cleveland byrjaði betur í fyrsta leikhluta, en þeir leiddu með tveimur stigum í hálfleik; 49-47. Í síðari hálfleik magnaðist spennan og hún var rosaleg undir lokin. J. R. Smith jafnaði metin fyrir Cleveland í 96-96 þegar ellefu sekúndur voru eftir. Chicago tóku leikhlé þremur sekúndum fyrir leikslok sem endaði með því að Derrick Rose fékk boltann frá Mike Dunleavy. Rose gerði sér lítið fyrir og kláraði leikinn með rosalegri flautukörfu. Lokatölur 99-96 sigur Cleveland. Rose var stigahæstur hjá Chicago, en hann átti rosalegan leik. Hann skoraði 30 stig, tók sjö fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Jimmy Butler bætti við 20 stigum. LeBron James skoraði 27 stig fyrir gestina í Cleveland. LA Clippers átti ekki í miklum vandræðum með Houston Rockets í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Staðan í hálfleik var 57-64, Clippers í vil. Þeir áttu svo frábæran þriðja leikhluta sem þeir unnu 35-19, en lokatölur urðu 25 stiga sigur Clippers; 124-99. James Harden var stigahæstur hjá Houston með 25 stig, en Dwight Howard tók fjórtán fráköst. J. J. Redick gerði 31 stig fyrir Clippers og Blake Griffin 22 stig. Hér að neðan má sjá rosalega sigurkörfu Rose og fleira efni frá leikjunum í nótt.Geggjaður flautuþristur Rose: Alvöru troðsla í boði Griffin: Topp-10 næturinnar:
NBA Mest lesið Uppgjörið: Aserbaísjan - Ísland 0-2 | Öruggur sigur og úrslitaleikur framundan Fótbolti Ronaldo sá rautt og óð reiður til Heimis Fótbolti Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Golf Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Fótbolti Mætti á völlinn með jólamynd af Stefáni Teiti og frú Fótbolti Leiðin á HM: Fjögur þúsund manns hurfu sporlaust Fótbolti Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti KR - Njarðvík 88-97 | Dýrmætur sigur gestanna Körfubolti Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍR - Grindavík 78-86 | Tveimur hent úr húsi en toppliðið heldur flugi Körfubolti Fleiri fréttir „Í öllum góðum hópum er alltaf einn sem labbar aftur á bak“ Uppgjörið: Keflavík - ÍA 96-72| Sigur Keflavíkur aldrei í neinni hættu Meistararnir stungu af í seinni Uppgjörið: ÍR - Grindavík 78-86 | Tveimur hent úr húsi en toppliðið heldur flugi KR - Njarðvík 88-97 | Dýrmætur sigur gestanna ÍA sækir Kanann sem Ármann losaði Extraleikarnir: Mættu báðir með markvörð úr silfurliðinu í Peking „Heimskuleg taktík hjá mér“ Sátt eftir fyrsta landsleikinn: „Vá, ég er eiginlega orðlaus“ Uppgjörið: Ísland - Serbía 59-84 | Löguðu erfiða stöðu Elvar með sautján stig gegn sínu gamla félagi Martin stoðsendingahæstur í sigri Nýtt fyrirkomulag á vali leikmanna í stjörnuleik NBA „Þjálfun snýst um samskipti“ Rebekka Rut spilar fyrsta landsleikinn í kvöld Ármenningar leggja árar ekki í bát og leita að nýjum Kana „Mér finnst við vera að taka skref í rétta átt fyrir framtíðina“ Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Stjórinn sem skipti Doncic frá Dallas missir starfið Bæði Florída-liðin unnu á flautukörfu í nótt og svona fóru þau að því Lofuðu Óla Óla og fengu hann svo í beina útsendingu úr búningsklefanum Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Blikarnir taplausir á toppnum Sonur Dominique Wilkins með vindmyllutroðsluna í blóðinu Kári og Kristó eru skemmtilegasta kombóið í þessari deild NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Sjá meira