Meistararnir töpuðu fyrsta leik | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. apríl 2015 07:38 Griffin bauð upp á nokkrar troðslur í nótt. Vísir/Getty
LA Clippers er komið í 1-0 forystu gegn meisturum San Antonio Spurs í rimmu liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar eftir sigur í nótt, 107-92. Chris Paul var magnaður og skoraði 32 stig fyrir Clippers og þá bætti Blake Griffin við 26 stigum auk þess að taka tólf fráköst. Clippers náði átján stiga forystu í þriðja leikhluta en Spurs náði ekki að brúa það bil. San Antonio hafði unnið fyrsta leikinn í síðustu ellefu rimmum sínum í úrslitakeppni á undan. Kawhi Leonard skoraði átján stig fyrir San Antonio og Tim Duncan var með ellefu stig og ellefu fráköst. Atlanta vann New Jersey, 99-92. Kyle Korver var með 21 stig í sigri efsta liði austurdeildarinnar en Atlanta leiddi frá upphafi til enda, án þess þó að ná að stinga af. Memphis vann Portland, 100-86, á heimavelli. Beno Udrich kom inn af bekknum og skoraði 20 stig fyrir Memphis en Zach Randolph var með sextán stig og ellefu fráköst. LaMarcus Aldridge skoraði 32 stig fyrir Portland en hann tók gríðarlegan fjölda skota í leiknum, hann hitti úr þrettán af 34. Damien Lillard var ekki langt undan með 21 skottilraun en hann hitti úr aðeins fimm og var með fjórtán stig. Memphis vann Portland í öllum leikjum liðsins í deildakeppninni í vetur.Úrslit næturinnar: Atlanta - Brooklyn 99-92 (1-0) Memphis - Portland 100-86 (1-0) LA Clippers - San Antonio 107-92 (1-0)Sjáðu magnaðar troðslur Blake Griffin: Beno Udrich átti frábæra innkomu gegn Portland: Kyle Korver fór fyrir Atlanta gegn New Jersey:
NBA Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira