Meistararnir rúlluðu yfir Oklahoma City Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. mars 2015 07:15 Kawhi Leonard í leiknum í nótt. Vísir/AP
Oklahoma City Thunder þarf áfram að berjast fyrir sæti sínu í úrslitakeppni NBA-deildarinnar en alls fóru þrettán leikir fram í nótt. Meistarar San Antonio Spurs unnu mikilvægan sigur á Oklahoma City, 130-91, en liðið hefur ekki skorað fleiri stig í einum leik á tímabilinu. Hinn magnaði Russell Westbrook fann sig engan veginn í leiknum en hann hélt af velli í þriðja leikhluta er hans menn voru 30 stigum undir. Hann skoraði sextán stig og nýtti fimm af sextán skotum sínum. Tony Parker var stigahæstur í jöfnu liði San Antonio með 21 stig en hann gaf sex stoðsendingar þar að auki. Oklahoma City hafði unnið fjóra leiki í röð fyrir leikinn í nótt. San Antonio er nú í góðri stöðu um að komast áfram í úrslitakeppnina en liðið er með 45 sigra í sjötta sæti deildarinnra. Oklahoma City er sem stendur í áttunda sætinu með 41 sigur en næsta lið á eftir, Phoenix, hefur unnið 38. Phoenix hefði getað minnkað forystu Oklahoma City í nótt en tapaði á heimavelli fyrir Sacramento, 108-99. Sacramento á ekki lengur möguleika á sæti í úrslitakeppninni. Það er meiri spenna í baráttunni um síðustu sætin í úrslitakeppninni í austurdeildinni. Miami (7. sæti, 33 sigrar) vann Boston (8. sæti, 31 sigur) á útivelli í nótt en Indiana (9. sæti, 31 sigur) vann mikilvægan sigur á Washington og er nú með jafn góðan árangur og Boston. Indiana var búið að tapa sex leikjum í röð fyrir leikinn í nótt. Brooklyn og Charlotte koma svo í næstu sætum á eftir með 30 sigra hvort en þessi lið mættust í nótt þar sem síðara liðið vann sigur í jöfnum leik, 91-88. Meðal annnarra úrslita má nefna að Cleveland vann Memphis, 111-89, og þar með sinn fjórða sigur í röð. Kyrie Irving, Kevin Love og LeBron James voru allir með 20 stig eða meira. Houston vann New Orleans, 95-93, þar sem Dwight Howard lék sinn fyrsta leik eftir tveggja mánaða fjarveru. Hann var með sjö fráköst í leiknum en James Harden 25 stig og tíu stoðsendingar.Úrslit næturinnar: Charlotte - Brooklyn 88-91 New York - LA Clippers 80-111 Orlando - Atlanta 83-95 Washington - Indiana 101-103 Toronto - Chicago 103-116 Boston - Miami 86-93 Memphis - Cleveland 89-111 Minnesota - LA Lakers 99-101 New Orleans - Houston 93-95 Denver - Philadelphia 85-99 Utah - Portland 89-92 San Antonio - Oklahoma City 130-91 Phoenix - Sacramento 99-108
NBA Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira