Útlitið ekki gott á Holtavörðuheiði og til skoðunar að opna hjálparmiðstöð Birgir Olgeirsson skrifar 8. mars 2015 21:13 Frá Holtavörðuheiði fyrr í dag. Steingrímur Þórðarson.
Enn er ófært um Holtavörðuheiði og hefur engin ákvörðun verið tekin um mokstur. Björgunarsveitir vinna að því að losa bíla á heiðinni og þá er snjómoksturbíll ennþá fastur þar. Til skoðunar er að opna fjöldahjálparmiðstöð í Reykjaskóla í Hrútafirði en engin ákvörðun hefur verið tekin að svo stöddu. Mun það ráðast af því hvort Holtavörðuheiðin verður opnuð en ekki er mikið útlit fyrir það miðað við veðurspá. Hilmar Frímannsson er formaður svæðistjórnar björgunarsveita á svæði 9, sem nær yfir báðar Húnavatnssýslurnar, en hann segir mokstur ekki hafa verið útilokaðan á Holtavörðuheiði að svo stöddu en útlitið sé ekki gott. Til skoðunar er að opna fjöldahjálparmiðstöð í Reykjaskóla en endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin. Um 200 ferðalangar eru veðurtepptir í Staðarskála í Hrútafirði en Hilmar segir möguleika á því að fá gistingu í Reykjaskóla og þá hafa einhverjir farið leiðina um Laxárdalsheiði og Heydal til að komast suður. Hilmar segir þá leið færa en ekki gott veður á Laxárdalsheði. „Það er fært og enginn snjór en svolítil veðurhæð,“ segir Hilmar. Björgunarsveitir vinna nú að því að losa snjómokstursbíl Vegagerðarinnar sem er enn fastur á Holtavörðuheiði.
Veður Tengdar fréttir Um 200 ferðalangar veðurtepptir í Staðarskála Holtavörðuheiðin ófær og snjómokstursbíllinn fastur á heiðinni. 8. mars 2015 19:38 Tugir í vanda á Holtavörðuheiði Búið er að loka Holtavörðuheiði. Þar sitja margir fastir vegna ófærðar og björgunarsveitir eru á leiðinni. 8. mars 2015 17:22 Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Erlent Íranir enn vígreifir Erlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Innlent Fleiri fréttir Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Sjá meira
Um 200 ferðalangar veðurtepptir í Staðarskála Holtavörðuheiðin ófær og snjómokstursbíllinn fastur á heiðinni. 8. mars 2015 19:38
Tugir í vanda á Holtavörðuheiði Búið er að loka Holtavörðuheiði. Þar sitja margir fastir vegna ófærðar og björgunarsveitir eru á leiðinni. 8. mars 2015 17:22