Einni bestu körfuboltakonu heims borgað fyrir að hvíla sig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2015 13:15 Diana Taurasi er mjög litríkur og skemmtilegur leikmaður. Vísir/Getty
Diana Taurasi hefur verið lengi ein af bestu körfuboltakonum heims og það er setið um starfskrafta hennar allt árið um kring. Nú hefur hún hinsvegar ákveðið að segja stopp og taka sér hvíld næsta sumar. Diana Taurasi hjálpaði Phoenix Mercury að vinna WNBA-deildina á síðasta ári en tilkynnti í gær að hún ætli ekki að spila með liðinu á næsta WNBA-tímabili. Bestu körfuboltakonur heims spila í WNBA-deildinni á sumrin og svo í Evrópu á veturna og þær fá því lítið sem enga hvíld því um leið og annað tímabilið endar þá byrjar hitt. Taurasi spilar á veturna með rússneska liðinu UMMC Ekaterinburg og þar fær hún megnið að árslaunum sínum því hún fær ekki nærri því eins mikið borgað fyrir að spila í WNBA. Rússarnir vildu að Taurasi kæmi úthvíld inn í næsta tímabil í Rússlandi og voru því tilbúnir að borga henni meira en WNBA-lið hennar hefði gert ef Taurasi hefði spilað næsta sumar. Hún ákvað að taka tilboði þeirra og sagðist í bréfi til stuðningsmanna Phoenix Mercury vera að hugsa um sig og sína fjölskyldu. Þetta er mikið áfall fyrir Phoenix Mercury en Diana Taurasi var valin besti leikmaður úrslitakeppninnar þar sem hún var með 21,9 stig og 5,8 stoðsendingar að meðaltali í leik. Það er líka mikið áfall fyrir WNBA-deildina að missa einn sinn allra besta leikmann. Diana Taurasi er 32 ára gömul og hefur spilað með Phoenix Mercury frá 2004. Hún hefur verið í herbúðum UMMC Ekaterinburg frá 2012. Það spilar líka inn í þetta að framundan eru Ólympíuleikar í Ríó 2016 þar sem hún getur unnið sitt fjórða Ólympíugull en hún var í sigurliði Bandaríkjanna 2004, 2008 og 2012.
Körfubolti NBA Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira