Al-Baghdadi sést í fyrsta sinn opinberlega 7. júlí 2014 12:00 Al-Baghdadi birtist opinberlega í fyrsta sinn. vísir/ap
Myndband sem talið er vera af leiðtoga ISIS-samtakanna að stýra bænahaldi í borginni Mósúl í norðurhluta Írak var birt um helgina.Í myndbandinu predikar al-Baghdadi mikilvægi jihad eða heilags stríðs. Leiðtoginn bætti við að hann væri hvorki merkilegri né dyggðugri en þeir sem á hlýddu. Myndir af leiðtoga ISIS hafa ekki birst áður opinberlega. Íraska öryggislögreglan vinnur nú að því að ganga úr skugga um að maðurinn á myndbandinu sé raunverulega al-Baghdadi. Bandarísk yfirvöld hafa boðið 10 milljónir dollara, ríflega 1,1 milljarð íslenskra króna, til höfuðs al-Baghdadi. Fjögur ár eru síðan al-Baghdadi tók yfir stjórn ISIS sem þá voru hluti af al-Qaida. Undir stjórn al-Baghdadi hafa ISIS orðið sjálfstæð samtök sem stefna að því að stofna sameinað íslamskt ríki í Írak og Sýrlandi. ISIS, sem stýrt er af súnnítum, hafa náð stjórn á stórum hluta Norður-Íraks. Sjítar hafa hins vegar verið við völd í Írak frá því súnnítanum Saddam Hussein var steypt af stóli árið 2003. Sókn ISIS hefur valdið auknum þrýstingi á forsætisráðherra Íraks, sjítann Nouri al-Maliki. Forsætisráðherrann hefur verið sakaður um eiga þátt í sókn ISIS með því að neita að deila völdum með súnnítum sem eru minnihlutahópur í landinu.
Mið-Austurlönd Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Ríkið hvetur til nýliðunar en útilokar fólk eftir fertugt Innlent Fleiri fréttir Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Sjá meira