Stormi spáð víða um land Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 3. febrúar 2014 12:43 Búist er við því að dragi úr vindi og úrkomu síðdegis á morgun. vísir/vilhelm
Stormi er spáð víða um land og víða er hált á þjóðvegum landsins. Á undan skilum djúprar lægðar er spáð mjög hvassri austurátt um tíma í Öræfasveit, hviður allt að 40-50 m/s frá því um hádegi og til um klukkan 16. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þá er vakin athygli á varasömum aksturskilyrðum á Hellisheiði og í Þrengslum, hríðarkófi og blindu síðdegis. Hviður 30-40 m/s undir Eyjafjöllum um tíma nærri klukkan 15 og eins síðdegis undir Hafnarfjalli. Norðaustan- og austanlands má reikna með dimmri hríð ásamt skafrenningi á fjallvegum upp úr miðjum degi og fram á kvöld. Stormur og ofanhríð einnig vestantil á Norðurlandi, á Vestfjörðum og í Dölum um tíma undir kvöldið sumsstaðar einnig í byggð. En annars hlánar um land allt á endanum.Færð og aðstæður Flestar aðalleiðir á Suðurlandi eru greiðfærar og Hringvegurinn er auður allt austur á Djúpavog. Hálkublettir eru á Mosfellsheiði og nokkrum fáfarnari vegum. Hálka er á Bláfjallavegi og í Kjósarskarði en flughált í Efri Grafningi. Það er hálka eða hálkublettir á köflum á Vesturlandi, einkum á útvegum. Skafrenningur er bæði á Holtavörðheiði og Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er víða hvasst og skafrenningur eða ofankoma. Stórhríð er á Klettshálsi, Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði og þar ekki útlit fyrir að opnist í dag. Óveður er á Gemlufallsheiði og þæfingsfærð. Þæfingur er einnig á kafla í Djúpinu. Hálka eða snjóþekja er víðast hvar á Norðurlandi og hríðarveður. Stórhríð er á Þverárfjalli og vegur ófær. Eins er ófært bæði á Hólasandi og Dettifossvegi. Snjóþekja eða hálka er á flestum vegum á Austurlandi og sumsstaðar skafrenningur. Greiðfært er frá Djúpavogi suður.Höfuðborgarsvæðið: Spáð er norðaustan 15-23 m/s og snjókomu, en austlægari og rigning í kvöld. Hvöss austanátt og rigning á S- og V-landi í fyrramálið en dregur úr vindi og úrkomu síðdegis á morgun. Hlýnandi veður, hiti 2 til 5 stig í kvöld og á morgun.Veðurhorfur á landinu næstu daga Austanátt á þriðjudag og miðvikudag með rigningu S-til og hita 1 til 5 stig, en þurrt og vægt frost á N-verðu landinu. Frá fimmtudegi til sunnudags er útlit fyrir að norðaustan- og norðanátt verði ríkjandi og ofankoma N- og A-lands, en þurrt sunnan heiða. Hiti um og undir frostmarki.
Veður Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira