Einnig talinn hafa framleitt MDMA 26. september 2012 08:30 mikið umstang Gríðarlegur viðbúnaður var í Efstasundinu þegar málið kom upp.Fréttablaðið/anton
Tæplega fimmtugur maður, sem var handtekinn fyrir tveimur vikum grunaður um fíkniefnaframleiðslu í bílskúrnum sínum, er nú laus úr gæsluvarðhaldi. Ekki var talin þörf á að halda honum í gæsluvarðhaldi og einangrun lengur, þótt málið sé enn ekki að fullu upplýst. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er talið að maðurinn hafi framleitt bæði amfetamín og MDMA, svokallað e-töfluduft, í aðstöðunni sem hann hafði komið sér upp. Þó var verksmiðjan langt frá því að vera eins fullkomin og sú sem var upprætt í Hafnarfirði sumarið 2008 og leiddi til þungra dóma yfir Tindi Jónssyni og Jónasi Inga Ragnarssyni. Maðurinn var handtekinn 13. september síðastliðinn eftir að lögreglan fann búnað og efni til framleiðslu fíkniefna í bílskúr í Efstasundi. Þá var einnig leitað í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði í tengslum við málið. Mikið magn af efnum fannst og voru þau öll send Háskóla Íslands til greiningar. Þeim greiningum er ekki enn lokið.- sh
Fréttir Mest lesið Lenti utan vegar vestan við Grundarfjörð Innlent Beltunum að þakka að bræðurnir séu enn á lífi Innlent Hvaða oddviti er duglegastur að mæta? Innlent Ekkert „en“ á eftir því að beita maka sinn ofbeldi Innlent „Nú ætla menn að kollvarpa þessu kerfi, fyrir hvað?“ Innlent Sonur Beckham sviptur ökuréttindum Erlent Verði að tryggja að á íslensku megi alltaf finna svar Innlent Lögreglumenn náðu stjörnuhrapi á eftirlitsmyndavél Innlent Dröfn og Samtökin ’78 verðlaunuð á degi íslenskrar tungu Innlent Segist hafa fengið fjölda hótana eftir að Trump hætti að styðja hana Erlent Fleiri fréttir Auglýsir eftir eiganda poka með hvítu dufti Börn sækist í bækur á ensku Minntust þeirra sem hafa látist í umferðinni 70 ára afmæli Tónlistarskóla Árnesinga fagnað Bílbelti bjarga mannslífum og stafrænt kynferðisofbeldi færist í aukana Lenti utan vegar vestan við Grundarfjörð Verði að tryggja að á íslensku megi alltaf finna svar Dröfn og Samtökin ’78 verðlaunuð á degi íslenskrar tungu „Unga fólkið okkar er umkringt efni á ensku“ Beltunum að þakka að bræðurnir séu enn á lífi Keldnakirkja á Keldum er 150 ára Telur bílbeltið hafa bjargað lífi sínu Hvaða oddviti er duglegastur að mæta? Yfir helmingur þeirra sem lést í bílslysi innanbæjar beltislaus Telja íslenskuna geta horfið með einni kynslóð Evrópumál, lánakjör og baráttan fyrir íslenskri tungu í stafrænum heimi Lögregla leysti upp unglingapartý í Árbæ Ekkert „en“ á eftir því að beita maka sinn ofbeldi Lögreglumenn náðu stjörnuhrapi á eftirlitsmyndavél Ræðst í úttekt á bókamarkaðnum „Nú ætla menn að kollvarpa þessu kerfi, fyrir hvað?“ Flugvél lenti í Keflavík vegna bilunar Glæsilegir forystuhrútar á Syðra – Velli í Flóa Áköf undirskriftakeppni hafin vegna jarðganga Tryggja þurfi að ráðamenn hlaupi ekki í störf hjá ESB Vara við mögulegri glerhálku í kvöld „Kerfinu kollvarpað“, jólabókaflóð og forystusauðir Höfðu eftirlit með fangageymslu lögreglu Sakar kaupendur um að hafa aldrei greitt fyrir veitingastaðina Missir úr skóla og tekur ekki þátt í félagslífi eftir að vökvagjöf var hætt Sjá meira