Sumarið skilaði 11.500 tonnum 1. september 2012 04:30 Frá Vopnafirði Unnið var á vöktum í allt sumar án þess að nokkrum félli verk úr hendi.mynd/jón sigurðarson
Búið er að frysta um 11.500 tonn af afurðum í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði frá því í sumarbyrjun. Uppistaðan, eða 8.700 tonn, er makríll. Nú í vikunni brá svo við í fyrsta skipti að gera varð hlé á vinnslunni vegna hráefnisskorts, en fyrstu haustbrælunum er um að kenna, segir í frétt á heimasíðu fyrirtækisins. Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda, hefur vertíðin gengið vel í alla staði. Vart er hægt að tala um frátafir frá veiðum, enda veðurblíða einstök. Allur aflinn á vertíðinni hefur verið unninn til manneldis á Vopnafirði og aðeins afskurður og fiskur, sem flokkast hefur frá í vinnslunni, hefur farið til bræðslu í fiskmjölsverksmiðjunni á staðnum. Að sögn Vilhjálms hefur sala afurða gengið vel í sumar og afskipanir hafa verið tíðar; oft hefur afurðum verið skipað út frá Vopnafirði einu til tvisvar sinnum í viku. Fjölda fólks þarf til að halda vinnslunni gangandi og hefur verið unnið eftir sérstöku frídagakerfi, sem hefur mælst vel fyrir að sögn stjórnenda. - shá
Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira