Hnípin þjóð í vanda Ari Teitsson skrifar 2. júní 2012 06:00 Hrunadansinn kringum gullkálfinn á fyrstu árum þessarar aldar skildi eftir sig hnípna þjóð í vanda. Sá vandi er margþættur en meðal þess erfiðasta er atvinnuleysi með tilheyrandi landflótta og nálægt þúsund milljarðar króna sem binda verður með gjaldeyrishöftum svo þeir flýi ekki land og valdi þannig gengishruni, óðaverðbólgu og skuldsöfnun fólks og fyrirtækja. Aðeins ein leið virðist fær til að draga raunverulega úr atvinnuleysi, þ.e. að skapa ný störf sem auka útflutningstekjur eða draga úr innflutningi. Innlendar millifærslur þjónustu eru fullreyndar. Ágreiningur er um hvernig leysa eigi vandann varðandi milljarðana sem leita úr landi. Gjaldeyrishöft fresta vandanum en leysa hann ekki. Einhverjir vilja afnema þau og taka tilheyrandi dýfu. Aðrir vilja semja um lausn vandans við Evrópusambandið, það gæti reynst þjóðinni dýrkeypt. Til eru þeir sem telja farsælast að borga skuldir með því að afla meira en við eyðum á næstu áratugum og greiða skuldina með mismuninum. Mikil og að hluta illa rökstudd umræða stendur yfir um nýtingu lands Grímsstaða á Fjöllum. Augljóst virðist að nýting landsins með þátttöku Kínverja, sem fæli í sér umfangsmikla uppbyggingu og aukin umsvif í ferðaþjónustu með tilheyrandi atvinnusköpun, fellur vel að þeim markmiðum sem hér að ofan eru talin þjóðarnauðsyn. Það virðist tilefni til að skoða málið frekar. Yfirráð lands Grímsstaða á FjöllumEr veruleg áhætta fólgin í því að Kínverjar nái yfirráðum yfir stóru landssvæði á hálendinu, jafnvel þótt um langtímaleigu, en ekki eignarhald, sé að ræða? Yfirráðaréttur yfir landi á að vera takmarkaður, landið á að nýtast þjóðfélagsþegnum þess á komandi öldum, því er í gildi fjölþætt löggjöf sem ætlað er að tryggja sjálfbæra nýtingu landsins í þágu þjóðarinnar. Ef löggjöfin nær ekki þessu markmiði er áhætta samfara einkayfirráðum yfir landi ekki bundin við yfirráð erlendra aðila, jafnvel Íslendingar gætu misnotað stöðu sína. Sú spurning hefur vaknað hvort Grímsstaðaverkefnið sé aðeins eitt skref erlends viðskiptajöfurs til að auðvelda aðgengi að öðrum og stærri viðskiptatækifærum, s.s. olíuleit og -vinnslu á Drekasvæðinu eða viðskiptum tengdum flutningum á Norður-Íshafinu. Þjóðin verður að treysta því að við munum sem fyrr ráða för innan okkar lögsögu. Líta ætti á það sem fagnaðarefni að aðilar sem starfa utan íslenskrar lögsögu séu tilbúnir að lúta henni, hafa hér bækistöðvar og beina hingað fjármunum. Atvinnuuppbygging á landsbyggðinniAtvinnuleysi á Íslandi í dag er í kringum 7%. Hér vantar því nokkur þúsund störf til að atvinnuástand sé viðunandi. Í ljósi reynslunnar má hugleiða hvort Íslendingar munu fást til að vinna þau störf sem kunna að skapast á Grímsstöðum, bæði á uppbyggingartímanum og við áformaða ferðaþjónustustarfsemi. Eitthvað virðist athugavert við íslenskan vinnumarkað og vinnusiðferði, geti fólk hafnað störfum en þegið bætur. Því miður hafa lykilatvinnugreinar, s.s. fiskvinnsla og ferðaþjónusta, þó um árabil þurft að reiða sig á erlenda starfskrafta. Víða á landsbyggðinni hefur fólk af erlendum uppruna fest rætur og er nú þátttakendur í íslensku samfélagi. Hafa skyldi í huga að hvort sem starfsmenn á Grímsstöðum yrðu af íslenskum eða erlendum uppruna verður að treysta íslenskri vinnulöggjöf til að tryggja að kaup og kjör við störf hérlendis séu boðleg. Ferðaþjónusta framtíðarinnarFerðaþjónusta á landsbyggðinni býr við mikla árstíðasveiflu eftirspurnar. Heilsársrekstur virðist forsenda arðsemi vandaðra fjárfestinga í ferðaiðnaði, en jafnframt grunnur að varanlegri atvinnusköpun og þar með búsetu. Uppbyggingin á Grímsstöðum, ef af verður, er stærsta tilraun á þessu sviði sem gerð hefur verið hérlendis. Sú tilraun er afar áhugaverð, en verður á næstu árum tæplega gerð með íslensku fjármagni. Nefnt hefur verið að uppbygging á svo afskekktu svæði virðist óraunhæf. Benda má á að hótel (greiðasala) hefur verið rekið á Grímsstöðum um aldir enda staðurinn á krossgötum. Þaðan liggja leiðir til Mývatns, til Axarfjarðar, til Vopnafjarðar, til Austurlands og til Herðubreiðar, Öskju og fleiri staða á hálendinu. Allt perlur íslenskrar náttúru. Ólíkt því sem margir telja eru Grímsstaðir nokkuð veðursæll staður. Sauðfjárbúskapur liðinna alda er til vitnis um það, sem og veðurskýrslur. Næstu skrefNú vinna forsvarsmenn sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum og Eyjafirði að frekari undirbúningi og útfærslu uppbyggingar umfangsmikillar ferðaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum, í samvinnu við kínverska fjárfestinn Huang Nubo. Sitt sýnist hverjum um ágæti verkefnisins. Mörgum spurningum um útfærslu og hugmyndir virðist ósvarað, þar á meðal um búsetu starfsfólks. Föst búseta með tilheyrandi þjónustu virðist þó almennt forsenda slíkrar landnýtingar. Ætla má að vönduð upplýsingamiðlun milli aðila og opin umræða, ekki síst við heimamenn, skipti sköpum um næstu skref. Hér þarf því að vanda til verka og ekki missa sjónir á því hvernig slíkt verkefni geti orðið að sem mestu gagni fyrir þjóðarhag. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðun Mest lesið Bættar samgöngur og betra samfélag í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Fúsk við mannvirkjagerð þarf ekki að viðgangast Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Reykjalundur á tímamótum Sveinn Guðmundsson Skoðun Áhyggjur af breytingum á eftirliti með mannvirkjagerð og faggilding Ágúst Jónsson Skoðun Snjall notandi, snjallari gervigreind Agnar Burgess Skoðun Ráð gegn óhugsandi áhættu Hafsteinn Hauksson,Reynir Smári Atlason Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason Skoðun Skoðun Skoðun Fúsk við mannvirkjagerð þarf ekki að viðgangast Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Reykjalundur á tímamótum Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Bættar samgöngur og betra samfélag í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Áhyggjur af breytingum á eftirliti með mannvirkjagerð og faggilding Ágúst Jónsson skrifar Skoðun Snjall notandi, snjallari gervigreind Agnar Burgess skrifar Skoðun Ráð gegn óhugsandi áhættu Hafsteinn Hauksson,Reynir Smári Atlason skrifar Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar