NBA: Los Angeles Clippers vann í San Antonio Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2012 09:00 Chris Paul Mynd/Nordic Photos/Getty
Los Angeles Clippers vann San Antonio Spurs í annað skiptið á þessu tímabili í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og að þessu sinni í San Antonio. Denver Nuggets endaði átta leikja sigurgöngu Memphis Grizzlies og Golden State Warriors vann Dallas Mavericks eftir framlengingu.Chris Paul var með 19 stig og 8 stoðsendingar þegar Los Angeles Clippers vann 92-87 útisigur á San Antonio Spurs. Blake Griffin var með 16 stig og 12 fráköst, Matt Barnes skoraði 14 stig og DeAndre Jordan var með 14 stig. Tim Duncan var atkvæðamestur hjá Spurs með 20 stig og 14 fráköst, Manu Ginobili bætti við 15 stigum og Tony Parker var með 11 stig. Tvö af þremur töpum San Antonio hafa komið á móti Clippers-liðinu sem hefur unnið 8 af 10 leikjum tímabilsins.Danilo Gallinari skoraði 26 stig og setti niður mikilvæga þriggja stiga körfu þrettán sekúndum fyrir leikslok þegar Denver Nuggets endaði átta leikja sigurgöngu Memphis Grizzlies með 97-92 sigri í Memphis. JaVale McGee var með 15 stig og 8 fráköst og Kenneth Faried bætti við 13 stigum og 13 fráköstum. Rudy Gay var stigahæstur hjá Memphis með 22 stig, Marc Gasol skoraði 16 stig og Zach Randolph var með 12 stig og 13 fráköst. Memphis hafði fyrir leikinn ekki tapað síðan í fyrsta leik tímabilsins á móti Los Angeles Clippers.Stephen Curry fór á kostum í lokin þegar Golden State Warriors vann Dallas Mavericks 105-01 eftir framlengingu. Curry skoraði 20 af 31 stigi sínu í leiknum í fjórða leikhluta og framlengingu en hann var einnig með 9 stoðsendingar. David Lee var með 17 stig og 19 fráköst og nýliðinn Harrison Barnes bætti við 20 stigum og 12 fráköstum. O.J. Mayo skoraði 27 stig fyrir Dallas þar af öll 11 stig liðsins í framlengingunni en Þjóðverjinn Chris Kaman var síðan með 18 stig og 17 fráköst.Úrslit leikja í NBA-deildinni í nótt: Washington Wizards - Indiana Pacers 89-96 Charlotte Bobcats - Milwaukee Bucks 102-98 Atlanta Hawks - Orlando Magic 81-72 Memphis Grizzlies - Denver Nuggets 92-97 Dallas Mavericks - Golden State Warriors 101-105 (framlengt) San Antonio Spurs - Los Angeles Clippers 87-92 Utah Jazz - Houston Rockets 102-91
NBA Mest lesið Kólumbía - Portúgal | Toppsæti riðilsins undir Fótbolti Bielsa með böggum hildar: „Skildi ekkert eftir mig fyrir úrúgvæskan fótbolta“ Fótbolti Tveir kantmenn gætu verið úr leik hjá Evrópumeisturunum Fótbolti Bellingham braut ísinn og England vann riðilinn Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport Króatar tóku annað sætið af Ganverjum Fótbolti Ummæli Tuchels um Reece James vekja furðu: „Enginn gat séð þetta fyrir“ Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira