Mata með tvö mörk í Kaupmannahöfn og Chelsea vann 4-0 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2012 18:00 Mynd/AFP
Evrópumeistarar Chelsea unnu sinn fyrsta sigur í titilvörninni þegar þeir sóttu þrjú stig til Kaupmannahafnar í kvöld. Chelsea vann þar 4-0 sigur á Nordsjælland en enska liðið hafði gert 2-2 jafntefli á heimavelli á móti Juventus í fyrstu umferðinni. Spánverjinn Juan Manuel Mata skoraði tvö mörk í leiknum, þriðja markið skoraði brasilíski varnarmaðurinn David Luiz beint úr aukaspyrnu og Ramires innsiglaði síðan sigurinn í lokin. Juan Manuel Mata kom Chelsea í 1-0 á 33. mínútu. Fernando Torres vann boltann af varnarlínu danska liðsins og Frank Lampard spilaði Mata fríann. Nordsjælland-liðið var þarna búið að vinna sig inn í leikinn eftir stress í byrjun en Evrópumeistarnir nýttu sér vel sofandahátt í vörninni. Nordsjælland-menn voru ekkert á því að gefa sig og áttu góða spretti. Joshua John var mjög nálægt því að jafna metin á 73. mínútu þegar Petr Cech varði skot hans í stöngina. Það voru hinsvegar Chelsea-menn sem áttu lokakafla leiksins. David Luiz kom Chelsea í 2-0 á 79. mínútu með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu og þremur mínútum síðar labbaði Juan Manuel Mata í gegnum vörnina og skoraði sitt annað mark í leiknum. Brasilímaðurinn Ramires skoraði síðan fjórða markið á 89. mínútu eftir sendingu frá landa sínum Oscar.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Stóra boxkvöldinu í Gamla bíói slegið á frest Sport Gæti Guardiola tekið við Ítölum? Fótbolti Mickelson neyðist til að sleppa Masters Golf „Bara sorry, ég sé þetta ekki gerast“ Körfubolti „Allt í einu var munurinn orðinn alltof mikill“ Sport Mæta meisturum Arsenal eftir sigur í framlengingu Fótbolti „Fallegt að sjá liðið stíga saman upp og taka skref áfram“ Sport Orri öflugur en staða Sporting viðkvæm Handbolti Niðurlægðu Real og mæta Glódísi Fótbolti Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gæti Guardiola tekið við Ítölum? Mæta meisturum Arsenal eftir sigur í framlengingu Íslenskur sigurvegari á fyrstu leiktíð Evrópubikarsins Niðurlægðu Real og mæta Glódísi Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni Gattuso stígi til hliðar en hver tekur við? „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Besta-spáin 2026: Mæta með læti Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Norðmaður tryggði Írak inn á HM og mætir Noregi í fyrsta leik Kane ver mark Blika Glódís skoraði gegn United og tryggði Bayern áfram í undanúrslit Diljá skoraði og Sædís lagði upp Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Lukaku skrópar á æfingar og er hótað refsingu Í toppstandi og stefnir á alla titla Chelsea setti nýtt met í taprekstri Gylfi næstelsti markaskorari í sögu íslenska landsliðsins Hafa ekki spilað á HM síðan Suárez beit Chiellini Kom að luktum dyrum hjá Óskari: „Hef ekki tíma í þetta“ „Á mjög erfitt með að sjá þetta vera jafn gott og síðasta sumar“ Segja hann koma úr efstu deild í Litháen en hann féll úr B-deildinni Besta-spáin 2026: Ætla blása hrakspárnar aftur á haf út Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum Sjá meira