Clippers í frjálsu falli | Boston stöðvaði sigurgöngu Milwaukee 23. mars 2012 09:00 Chris Kaman og Blake Griffin í baráttunni undir körfunni. AP
Það gengur frekar illa hjá LA Clippers þessa dagana í NBA deildinni í körfuknattleik og stórstjörnur liðsins Blake Griffin og Chris Paul hafa ekki náð að koma í veg fyrir þriggja leikja taphrinu liðsins. Liðið tapaði 97-90 á útivelli gegn New Orelans í nótt þar sem að Chris Paul lék áður. Alls fóru sex leikir fram í nótt. Þjálfari Clippers, Vinny Del Negro, er eflaust farinn að undirbúa brottför sína frá liðinu enda er starfsöryggi þjálfara hjá Clippers lítið sem ekkert. Chris Kaman skoraði 20 stig fyrir New Orleans sem hafði tapað fimm leikjum í röð. Blake Griffin skoraði 21 stig fyrir gestina og Paul skoraði 16 stig en hann hitti aðeins úr 5 af alls 14 skotum sínum í leiknum. New Orleans er í þeirri stöðu að liðið er í eigu NBA deildarinnar og hefur gengið hægt að finna kaupanda að liðinu. Chris Paul fór fram á það s.l. sumar að fá að fara frá liðinu og um tíma var hann nánast búinn að ganga frá samkomulagi við LA Lakers en forráðamenn NBA deildarinnar vildu ekki senda hann til Lakers. Niðurstaðan varð því grannaliðið LA Clippers sem er skipað ótrúlega hæfileikaríkum leikmönnum sem hafa sett upp troðslusýningar hvað eftir annað í leikjum vetrarins. Paul Pierce skoraði skoraði 25 stig í 100-91 sigri Boston gegn Milwaukee á útivelli. Þar með lauk sex leikja sigurgöngu Milwaukee. Kevin Garnett skoraði 16 stig og tók 10 fráköst fyrir gestina sem voru að ljúka við sjöunda útileikinn í röð af alls átta sem eru á dagskrá liðsins að þessu sinni. Brandon Jennings skoraði 19 stig fyrir Milwaukee. Úrslit frá því í nótt: New Orleans – LA Clippers 97-09 Milwaukee – Boston 91-100 Houston – Golden State 109-83 Washington – Indiana 83-85 Portland – Memphis 97-93 Sacramento – Utah 102-103
NBA Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Ummæli Tuchels um Reece James vekja furðu: „Enginn gat séð þetta fyrir“ Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira