Irving bestur í leik hinna rísandi stjarna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. febrúar 2012 20:00
Ungar stjörnur NBA körfuboltans mættust í Orlando í nótt en leikurinn er hluti af hinni árlegu Stjörnuleikshelginni. Kyrie Irving, leikstjórnandi Cleveland Cavaliers, var valinn maður leiksins. Það var fátt um fínar varnir en þeim meira um skemmtileg sóknartilþrif eins og hefð er fyrir í leikjum sem þessum. Irving skoraði úr öllum átta þriggja stiga skotum sínum í leiknum og lauk leik með 34 stig. „Ég hef aldrei verið svona heitur fyrir utan. Það er verst að þetta gerðist í Stjörnuleiknum. Þessar tölur telja ekki sem hluti af tímabilinu," sagði Irving en lið hans hafði sigur í leiknum 146-133. „Þegar öllu er á botninn hvolft var skemmtilegt að spila með svona hæfileikaríkum leikmönnum. Þetta var frábær upplifun," sagði Irving sem var valinn fyrstur af Cleveland í nýliðavalinu á síðasta ári. Blake Griffin, framherji Los Angeles Clippers og nýliði síðasta árs, átti fjölmargar glæsilegar troðslur í leiknum og má sjá eina þeirra í spilaranum hér fyrir ofan. Griffin vann einmitt troðslukeppnina í fyrra. Jeremy Lin lét lítið fyrir sér fara og spilaði í aðeins níu mínútur. Stjörnuleikurinn sjálfur fer fram aðfaranótt mánudags og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan 01:15 eftir miðnætti.
NBA Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira