Matvælaframleiðsla breytist 25. ágúst 2011 02:00 vel merkt og rekjanlegt Meðal markmiða með evrópsku matvælalöggjöfinni er að tryggja að allur matur sé vel merktur og rekjanlegur í gegnum öll stig framleiðslu og dreifingar.
Hinn 1. mars í fyrra tók gildi hér á landi matvælalöggjöf um hollustuhætti og eftirlit á Evrópska efnahagssvæðinu. Löggjöfina tekur Ísland upp samkvæmt EES-samningnum en gefinn var átján mánaða frestur til að lögfesta breytingar vegna búfjárafurða sem taka því gildi 1. nóvember næstkomandi. Umhverfi kjöt- og mjólkurframleiðslu tekur nokkrum stakkaskiptum við breytingarnar. Matvælastofnun sér um eftirlit með matvælaframleiðslu á Íslandi. Í kynningarefni stofnunarinnar kemur fram að búið er að innleiða eldri matvælalöggjöf ESB á Evrópska efnahagssvæðinu og þar með á Íslandi. Löggjöfin er í gildi fyrir sjávarafurðir, fiskisjúkdóma og almenn matvæli. Þá hefur fóðurlöggjöf ESB einnig verið innleidd en hingað til hefur Ísland verið á undanþágu varðandi búfjárafurðir og dýraheilbrigði. Markmið matvælalöggjafarinnar er að vernda líf og heilsu manna og tryggja jafnframt frjálst flæði vöru á Evrópska efnahagssvæðinu. Þá eiga reglurnar að tryggja hagsmuni neytenda og til að mynda gera þeim kleift að rekja feril matvæla á öllum stigum framleiðslu og dreifingar. „Ég held að þessar reglur séu vandaðar og settar að mjög vel skoðuðu máli. Almennt séð held ég að þær séu til bóta og þetta sé góð löggjöf,“ segir Sigurður Örn Hansson, forstöðumaður matvælaöryggis og neytendamála hjá Matvælastofnun, um nýju reglurnar. Sérstakar kvaðir á útflutningÍslensk sláturhús hafa að sögn Sigurðar haft útflutningsleyfi til Evrópuríkja frá árinu 1992. Nú hafi öll sauðfjársláturhús, nokkur stórgripahús og öll stóru mjólkurbúin slíkt leyfi. Matvæla- og dýralækningastofnun ESB sótti Ísland heim í september á síðasta ári. Markmiðið var að meta framleiðsluferla við kjöt- og mjólkurframleiðslu á Íslandi hjá fyrirtækjum sem flytja út til ríkja ESB og ganga úr skugga um hvort framleiðslan væri í samræmi við reglur. Voru heimsótt fimm fyrirtæki sem öll höfðu hlotið útflutningsleyfi. Hjá öllum fimm fyrirtækjum var hins vegar misbrestur á því að reglunum væri framfylgt. Engin gögn voru til staðar um það hvort fyrirtækin hefðu uppfyllt gæðastaðla áður en þau hlutu leyfið. Þá kom í ljós skortur á skipulagi, aðstöðu, tækjum og viðhaldi í þeim öllum auk þess sem ýmsar aðrar athugasemdir voru gerðar við starfsemi þeirra. Í einu kjötframleiðslufyrirtæki þóttu aðstæður fullkomlega óviðunandi og var þess þegar krafist að leyfið yrði dregin til baka. Í öðru sláturhúsi þótti vera töluverð hætta á smitum milli tegunda auk þess sem skortur var á merkingum. Mjólkurbúin tvö sem heimsótt voru uppfylltu hins vegar kröfur að mestu leyti. Þá töldu skoðunaraðilar að heilbrigði fólks stæði ekki ógn af framangreindum vanköntum. „Það var strax tekið á þessum athugasemdum held ég. Almennt er ástandið nokkuð gott en ef þú ferð í svona matvælafyrirtæki má lengi finna eitthvað sem er að. Auðvitað má ýmislegt bæta,“ segir Sigurður, spurður um þessa gagnrýni. Matvæla- og dýralækningastofnun ESB hefur skoðað aðstæður á Íslandi reglulega undanfarin ár og kom hingað árið 2007. Í skýrslu vegna seinni heimsóknarinnar kemur fram að í millitíðinni hafi aðeins verið aðhafst með fullnægjandi hætti vegna einnar af fjórum athugasemdum stofnunarinnar. Stofnunin taldi auk þess verulega galla vera á eftirliti og framfylgni reglna hjá Matvælastofnun og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri að svo stöddu hægt að treysta því að íslensku fyrirtækin störfuðu í samræmi við gæðastaðla. Undirbúningur stendur yfirÞegar niðurstöður heimsóknarinnar lágu fyrir hittu fulltrúar hennar fulltrúa Matvælastofnunar sem staðfestu þær. Þá voru lagðar fram sex tillögur um hvernig bæta mætti það sem misbrestur þótti hafa verið á. Í nóvember í fyrra setti Matvælaeftirlitið svo fram aðgerðaáætlun um það hvernig brugðist skyldi við. Spurður hvernig gangi að bregðast við athugasemdunum og undirbúa gildistöku laganna segir Sigurður: „Ég held að það gangi bara þokkalega. Við vinnum að því hörðum höndum að innleiða þessa löggjöf og það sama gildir um fyrirtæki sem vinna búfjárafurðir að fullu. Ég er ekki viss um að allt verði klárt í öllum fyrirtækjum og það er ekki víst að allt verði búið hjá okkur. Verði þörf á getum við sótt um viðbótarfrest en ég held að við séum á réttri leið.magnusl@frettabladid.is
Fréttir Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira