Bauð öllum starfsmönnum íþróttahússins út að borða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. október 2011 23:30 Danny Granger. Mynd/Nordic Photos/Getty
NBA-verkfallið bitnar ekki bara á NBA-áhugmönnum, milljarðamæringunum sem eiga félögin eða milljarðamæringunum sem spila leikinn. Það er fullt af fólki sem vinnur í kringum NBA-liðin og NBA-leikina og það hefur þurft að horfa á eftir miklum tekjumissi á meðan eigendur og leikmenn deila um hvernig þeir eiga að skipta öllum milljörðunum. Danny Granger er aðalstjarna Indiana Pacers liðsins og hann tók sig til og bauð öllu starfsfólki Conseco Fieldhouse, heimahallar Indiana Pacers, út að borða á dögunum. Granger var með 20,5 stig að meðaltali á síðasta tímabili eða nokkuð minna en hann skoraði tímabilin á undan. Granger sendi boðið út á twitter-síðu sinni en það má örugglega búast við góðri mætingu ekki síst ef fólkið fær að umgangast stjörnuna sína líka. Granger er ekki sá fyrsti til að létta starfsfólki NBA-félaga lífið en hann fór þó ekki eins langt og Lakers-mennirnir Luke Walton og Kobe Bryant sem gáfu þúsundir dollara til starfsmanna Lakers sem höfðu misst vinnunna vegna verkfallsins. Danny Granger fékk 10.973.202 dollara í laun fyrir síðasta tímabil eða tæpa 1,3 milljarða íslenskra króna. Hann hefur fengið yfir 27 milljónir dollara í laun á þeim sex árum sem hann hefur spilað í NBA-deildinni. Strákurinn ætti því alveg að hafa efni á því að bjóða starfsfólkinu upp á alvöru steik og eitthvað gott að drekka með.
NBA Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Þjóðhátíð þegar Grænhöfðaeyjar komst áfram Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira