Nowitzki skoraði jafnmikið í fjórða og súperstjörnur Miami til samans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júní 2011 20:45 Dirk Nowitzki. Mynd/AP
Dirk Nowitzki fór á kostum þegar Dallas Mavericks liðið tryggði sér NBA-meistaratitilinn með því að vinna 105-95 sigur á Miami Heat í nótt í sjötta og síðasta leik liðanna í úrslitaeinvíginu. Dallas vann þar með einvígið 4-2 og fagnaði sínum fyrsta NBA-meistaratitli frá upphafi. Dirk Nowitzki var kosinn besti leikmaður úrslitaeinvígsins en hann skoraði 26,0 stig að meðaltali í einvíginu, tók 9,7 fráköst og gaf 2,0 stoðsendingar í leik. Nowitzki hitti úr 41,6 prósent skota sinna og setti niður 97,8 prósent vítanna í einvíginu. Það var samt í fjórða leikhlutanum sem Nowitzki gerði einkum gæfumuninn fyrir sitt lið. Nowitzki skoraði 62 stig í fjórða leikhlutanum í einvíginu þar sem hann hitti úr 51 prósent skota sinna utan af velli og setti niður öll 24 vítaskotin sín. Leik eftir leik kláraði Dirk sóknir Dallas þegar ekkert mátti útaf bregða og það vóg þungt þegar upp var staðið. Stórstjörnur Miami Heat, Dwyane Wade og LeBron James, skoruðu samtals 62 stig í fjórða leikhlutanum í einvíginu eða jafnmikið og Nowitzki. James skoraði 18 stig í fjórða leikhlutanum í þessum sex leikjum eða 44 færri stig en Dirk og það var því Wade sem sá til þess að þeir félagar skoruðu jafnmikið og Nowitzki í fjórða leikhlutanum í þessu einvígi.
NBA Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Uppeldiskerfi argentínska fótboltans níðist á börnum Fótbolti Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Íslenski boltinn Afsalar sér óvænt öllum heimsmeistaratitlum Sport BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira