Almannavarnir hafa mestar áhyggjur af öskufallinu 22. maí 2011 09:58 Myndina tók Egill Aðalsteinsson í gærkvöldi.
Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá almannavörnum, segir mikið öskufall vera í kringum Kirkjubæjarklaustur, bæði vestur út á Mýrdalssand og austur á Skeiðarársand. Þjóðveginum er lokað frá Kirkjubæjarklaustri að Freysnesi. Björgunarsveitir hafa verið að störfum síðan það fór að verða vart við öskufall í byggð í gærkvöldi. Aukið hefur verið við viðbúnað lögreglu á svæðinu ,,sérsveitarmenn frá Ríkislögreglustjóra eru farnir austur og lögreglumenn verið kallaðir út bæði á Hornafirði og Kirkjubæjarklaustri. Við erum heldur að fjölga mönnum að störfum heldur en hitt" segir Víðir. Menn hafa mestar áhyggjur af öskufallinu. „Við höfum þessa bitru reynslu úr Eyjafjallajökli hvernig þetta getur verið og staðið jafnvel lengi yfir og haft mikil áhrif á fólkið. Við erum að huga að því að reyna að styðja við þá sem þarna eru að berjast í þessum málum." Víðir segir menn einnig hafa áhyggjur af Skeiðarárhlaupi en þar sem vegurinn er lokaður á því svæði þar sem hlaupið getur komið niður. „Við höfum því gert þær ráðstafanir þar sem hægt er að gera, síðan er bara að bíða og sjá hvernig verður með það." Verið er að senda meiri mannskap á svæðið. Tilmæli Víðis eru að fólk haldi sig innandyra eða ef fólk þarf að vera úti að vera með rykgrímur og hlífðargleraugu. „Við vitum það náttúrulega að bændur búa ekki við þann munað að geta leyft sér það heldur þurfa að sinna skepnum og við erum eftir bestu getu að reyna að aðstoða þá og hvetjum þá til að hafa samband við lögreglu ef þeir telja sig þurfa aðstoð, þá erum við með mannskap til þess," segir Víðir að lokum. Aukafréttatími verður á Stöð 2 á slaginu klukkan tólf á hádegi vegna eldgossins.
Helstu fréttir Tengdar fréttir Aska fellur víða til jarðar Aska hefur fallið víða í byggð í nágrenni Vatnajökuls og hefur talsvert verið um öskufall á Kirkjubæjarklaustri og sveitinum í kringum. Einnig hefur orðið vart við öskufall á Höfn í Hornarfirði. Askan er fín og berst til suðausturs. Líkt og Vísir greindi frá fyrr í kvöld hvetja almannavarnir íbúa á svæðinu í nágreni Vatnajökuls að halda sig innan dyra vegna eldgossins í Grímsvötnum sem hófst á sjöunda tímanum í kvöld. 21. maí 2011 23:19 Grimsvatnagosið í heimsfréttunum Fjölmiðlar víða um heim hafa í kvöld sagt frá eldgosinu í Grímsvötnum minnugir þess hve mikil röskun varð á flugi í fyrra þegar Eyjafjallajökull gaus. 21. maí 2011 21:53 Gosmökkurinn sést víða Gosmökkurinn frá Grímsvötnum í Vatnajökli sést víða og hefur risið hratt frá því að hans varð vart. Íbúar á Selfossi, Laugarvatni og Flúðum eru meðal þeirra sem haft hafa samband við fréttastofu síðustu mínútur. Samkvæmt sjónarvottum á Flúðum er mökkurinn dökkur neðst en að mestu hvítur. Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum sést mökkurinn einnig frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. 21. maí 2011 19:40 Gosmökkurinn sést frá Reykjavík Gosið í Grímsvötnum virðist vera mjög öflugt, segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi. Hann segir að mökkurinn sjáist alla leið frá Reykjavík. 21. maí 2011 22:07 Starfsmenn Vegagerðarinnar bíða átekta Engin ákvörðun hefur verið tekin um að loka vegum vegna eldgossins sem hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli á sjöunda tímanum í kvöld. Starfsmenn starfsstöðva Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornarfirði bíða átekta. "Við fylgjumst með þróuninni,“ sagði Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri í Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal, í samtali við fréttastofu. Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvort loka þurfi vegum eða rjúfa skörð í vegi. 21. maí 2011 21:33 Allir viðbragðsaðilar komnir af stað vegna gossins "Það er búið að setja allt í gang, almannavarnir og búið að tilkynna þetta erlendis,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, skjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að strókurinn frá gosinu sjáist víða af á landinu. "Hann sést jafnvel frá Selfossi,“ segir Hjörleifur. Því sé ekki um að villast að gosið sé hafið. Hins vegar sé ekki ljóst hversu mikið gosið sé. Verið sé að undirbúa flug til að sjá gosið og finna nákvæma staðsetningu þess. Allt bendi hins vegar til þess að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:41 Gosmökkurinn er rosa sjónarspil "Það er rosa sjónarspil að sjá þetta,“ segir Laufey Stefánsdóttir, sem er stödd ásamt fjölskyldu og vinum í sumarbústaðnum sínum á Hellu. Hún segir að gosmökkurinn sjáist mjög vel þaðan. Gos hófst i Vatnajökli rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld eru viðbragðsaðilar á leið í flug á eftir til að greina nánar staðsetningu þess, en langlíklegast þykir að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:55 Gosið sást greinilega frá Reykjavík Gosið úr Grímsvötnum sást greinilega víða á landinu í gærkvöld. Meðal annars í Reykjavík. Sveinn Þorsteinsson, lesandi Vísis, var staddur í Öskjuhlíð í gærkvöld og tók þá þessa mynd af gosmekkinum. 22. maí 2011 06:38 Kraftur gossins svipaður "Það gæti verið að það sé hægt að draga úr kraftinum en þetta er svipað. Hann er sennilega ekki að aukast,“ segir Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni, um eldgosið í Grímsvötnum sem hófst í gær. Óvíst er hvort gosið komi til með að valda hlaupi. 22. maí 2011 09:19 Eldgos að hefjast í Grímsvötnum Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum 21. maí 2011 19:06 Gosmökkurinn mikill og öskufall víða Askan frá eldgosinu í Grímsvötnum er nú farin að dreifa sér víða eins og sést á þessari mynd sem Vihelm Gunnarsson ljósmyndari tók af lögreglumanni á Kirkjubæjarklaustri. Almannavarnir hafa sent frá sér viðvörun vegna öskufalls frá gosinu. 21. maí 2011 00:01 Búist við hlaupi í Grímsvötnum "Það má búast við einhverju hlaupi í Grímsvötnum vegna gossins,“ segir Matthew Roberts, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þó að það liggi fyrir að vegna þess að það varð jökulhlaup í Grímsvötnum í nóvember í fyrra þá sé hugsanlegt að hlaupið verði ekki stórt. "Spurningin er núna hvar gosið er. Við vitum það ekki fyrir víst hvar það er," segir Matthew. 21. maí 2011 21:21 Eldgos í Grímsvötnum staðfest „Það sést til gosmakkar. Þannig að það er staðfest að eldgos er hafið," segir Víðir Reynisson, hjá almannavörnum Ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Hann segir ómögulegt að segja til um það hversu mikið gosið er. 21. maí 2011 19:26 Ekki þörf á fólksflutningum vegna gossins Lögreglan á Hvolsvelli og í Vík fylgist með umferð um Þjóðveg 1 vegna eldgossins í Grímsvötnum, samkvæmt upplýsingum frá Sveini Kristjáni Rúnarssyni yfirlögregluþjóni. Hann segir þó að ekki sé þörf á því að rýma nein hús í nágrenni við Vatnajökul vegna gossins. Aðstæður eru því allt öðruvísi í þessu gosi en var fyrir rúmu ári síðan þegar Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull gusu. Þá urðu mestu fólksflutningar á Íslandi frá þvi í Heimaeyjargosi árið 1973. 21. maí 2011 20:13 Veginum um Skeiðarársand lokað Veginum um Skeiðarársand hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum og hófst fyrr í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 21. maí 2011 21:37 Keflavíkurflugvöllur opinn til sjö Keflavíkurflugvöllur verður opinn fram til klukkan sjö og þá verður staðan metin að nýju. Sama gildir um innanlandsflug. Staðan fyrir daginn verður svo metin aftur eftir það. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sendi frá sér nú í nótt. Eldgos hófst í Grímsvötnum um klukkan sjö í gærkvöld og var samhæfingamiðstöðin í Skógarhlíð samstundis virkjuð vegna hennar. 22. maí 2011 06:12 Íbúum bent á að halda sig innan dyra Vegna eldgossins í Grímsvötnum hefur orðið vart við öskufall á Kirkjubæjarklaustri og fleiri stöðum á Suðurlandi. Askan er mjög fín og berst hún til suðausturs. Almannavarnir benta íbúum á svæðinu að halda sig innan dyra og kynna sér bækling um öskufall sem hægt er að nálgast á heimasíðu almannavarna. Bændum er ráðlagt að huga að búsmala allt vestan frá Síðu og austur fyrir Reynivelli. 21. maí 2011 22:21 Mest lesið Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira
Aska fellur víða til jarðar Aska hefur fallið víða í byggð í nágrenni Vatnajökuls og hefur talsvert verið um öskufall á Kirkjubæjarklaustri og sveitinum í kringum. Einnig hefur orðið vart við öskufall á Höfn í Hornarfirði. Askan er fín og berst til suðausturs. Líkt og Vísir greindi frá fyrr í kvöld hvetja almannavarnir íbúa á svæðinu í nágreni Vatnajökuls að halda sig innan dyra vegna eldgossins í Grímsvötnum sem hófst á sjöunda tímanum í kvöld. 21. maí 2011 23:19
Grimsvatnagosið í heimsfréttunum Fjölmiðlar víða um heim hafa í kvöld sagt frá eldgosinu í Grímsvötnum minnugir þess hve mikil röskun varð á flugi í fyrra þegar Eyjafjallajökull gaus. 21. maí 2011 21:53
Gosmökkurinn sést víða Gosmökkurinn frá Grímsvötnum í Vatnajökli sést víða og hefur risið hratt frá því að hans varð vart. Íbúar á Selfossi, Laugarvatni og Flúðum eru meðal þeirra sem haft hafa samband við fréttastofu síðustu mínútur. Samkvæmt sjónarvottum á Flúðum er mökkurinn dökkur neðst en að mestu hvítur. Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum sést mökkurinn einnig frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. 21. maí 2011 19:40
Gosmökkurinn sést frá Reykjavík Gosið í Grímsvötnum virðist vera mjög öflugt, segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi. Hann segir að mökkurinn sjáist alla leið frá Reykjavík. 21. maí 2011 22:07
Starfsmenn Vegagerðarinnar bíða átekta Engin ákvörðun hefur verið tekin um að loka vegum vegna eldgossins sem hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli á sjöunda tímanum í kvöld. Starfsmenn starfsstöðva Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornarfirði bíða átekta. "Við fylgjumst með þróuninni,“ sagði Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri í Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal, í samtali við fréttastofu. Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvort loka þurfi vegum eða rjúfa skörð í vegi. 21. maí 2011 21:33
Allir viðbragðsaðilar komnir af stað vegna gossins "Það er búið að setja allt í gang, almannavarnir og búið að tilkynna þetta erlendis,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, skjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að strókurinn frá gosinu sjáist víða af á landinu. "Hann sést jafnvel frá Selfossi,“ segir Hjörleifur. Því sé ekki um að villast að gosið sé hafið. Hins vegar sé ekki ljóst hversu mikið gosið sé. Verið sé að undirbúa flug til að sjá gosið og finna nákvæma staðsetningu þess. Allt bendi hins vegar til þess að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:41
Gosmökkurinn er rosa sjónarspil "Það er rosa sjónarspil að sjá þetta,“ segir Laufey Stefánsdóttir, sem er stödd ásamt fjölskyldu og vinum í sumarbústaðnum sínum á Hellu. Hún segir að gosmökkurinn sjáist mjög vel þaðan. Gos hófst i Vatnajökli rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld eru viðbragðsaðilar á leið í flug á eftir til að greina nánar staðsetningu þess, en langlíklegast þykir að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:55
Gosið sást greinilega frá Reykjavík Gosið úr Grímsvötnum sást greinilega víða á landinu í gærkvöld. Meðal annars í Reykjavík. Sveinn Þorsteinsson, lesandi Vísis, var staddur í Öskjuhlíð í gærkvöld og tók þá þessa mynd af gosmekkinum. 22. maí 2011 06:38
Kraftur gossins svipaður "Það gæti verið að það sé hægt að draga úr kraftinum en þetta er svipað. Hann er sennilega ekki að aukast,“ segir Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni, um eldgosið í Grímsvötnum sem hófst í gær. Óvíst er hvort gosið komi til með að valda hlaupi. 22. maí 2011 09:19
Eldgos að hefjast í Grímsvötnum Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum 21. maí 2011 19:06
Gosmökkurinn mikill og öskufall víða Askan frá eldgosinu í Grímsvötnum er nú farin að dreifa sér víða eins og sést á þessari mynd sem Vihelm Gunnarsson ljósmyndari tók af lögreglumanni á Kirkjubæjarklaustri. Almannavarnir hafa sent frá sér viðvörun vegna öskufalls frá gosinu. 21. maí 2011 00:01
Búist við hlaupi í Grímsvötnum "Það má búast við einhverju hlaupi í Grímsvötnum vegna gossins,“ segir Matthew Roberts, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þó að það liggi fyrir að vegna þess að það varð jökulhlaup í Grímsvötnum í nóvember í fyrra þá sé hugsanlegt að hlaupið verði ekki stórt. "Spurningin er núna hvar gosið er. Við vitum það ekki fyrir víst hvar það er," segir Matthew. 21. maí 2011 21:21
Eldgos í Grímsvötnum staðfest „Það sést til gosmakkar. Þannig að það er staðfest að eldgos er hafið," segir Víðir Reynisson, hjá almannavörnum Ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Hann segir ómögulegt að segja til um það hversu mikið gosið er. 21. maí 2011 19:26
Ekki þörf á fólksflutningum vegna gossins Lögreglan á Hvolsvelli og í Vík fylgist með umferð um Þjóðveg 1 vegna eldgossins í Grímsvötnum, samkvæmt upplýsingum frá Sveini Kristjáni Rúnarssyni yfirlögregluþjóni. Hann segir þó að ekki sé þörf á því að rýma nein hús í nágrenni við Vatnajökul vegna gossins. Aðstæður eru því allt öðruvísi í þessu gosi en var fyrir rúmu ári síðan þegar Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull gusu. Þá urðu mestu fólksflutningar á Íslandi frá þvi í Heimaeyjargosi árið 1973. 21. maí 2011 20:13
Veginum um Skeiðarársand lokað Veginum um Skeiðarársand hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum og hófst fyrr í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 21. maí 2011 21:37
Keflavíkurflugvöllur opinn til sjö Keflavíkurflugvöllur verður opinn fram til klukkan sjö og þá verður staðan metin að nýju. Sama gildir um innanlandsflug. Staðan fyrir daginn verður svo metin aftur eftir það. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sendi frá sér nú í nótt. Eldgos hófst í Grímsvötnum um klukkan sjö í gærkvöld og var samhæfingamiðstöðin í Skógarhlíð samstundis virkjuð vegna hennar. 22. maí 2011 06:12
Íbúum bent á að halda sig innan dyra Vegna eldgossins í Grímsvötnum hefur orðið vart við öskufall á Kirkjubæjarklaustri og fleiri stöðum á Suðurlandi. Askan er mjög fín og berst hún til suðausturs. Almannavarnir benta íbúum á svæðinu að halda sig innan dyra og kynna sér bækling um öskufall sem hægt er að nálgast á heimasíðu almannavarna. Bændum er ráðlagt að huga að búsmala allt vestan frá Síðu og austur fyrir Reynivelli. 21. maí 2011 22:21