Kókaínsmygl og peningaþvætti 14. apríl 2010 03:00 innvortis Parið var með nær kíló af kókaíni innvortis.
Tveir karlmenn og tvær konur hafa verið ákærð fyrir fíkniefnasmygl, peningaþvætti og sölu fíkniefna. Hinir ákærðu eru íslensk, karl og kona, svo og par af erlendu bergi brotið. Síðarnefnda parið er ákært fyrir að hafa staðið saman að innflutningi á rúmlega 800 grömmum af kókaíni frá Dóminíska lýðveldinu. Efnin fluttu þau innvortis, en maðurinn hafði lagt á ráðin um fjármögnun og ferðatilhögun vegna smyglsins. Hjúin losuðu sig við efnin á Hótel Fróni á Laugavegi í Reykjavík. Lögregla fann kókaínið tveimur dögum síðar á dvalarstað mannsins. Sami maður er einnig ákærður fyrir peningaþvætti. Hann seldi fíkniefni fyrir 1,2 milljónir á árunum 2008 til 2009, sem hann hafði sjálfur smyglað til landsins. Íslenska konan, sem ákærð er í málinu, geymdi fíkniefnaágóðann fyrir manninn. Maðurinn hafði einnig látið hana fá kókaín og marijúana, auk þess sem hann lét íslenska karlmanninn ákærða fá kókaín til að selja. Íslendingurinn er því ákærður fyrir kókaínsölu en einnig peningaþvætti þar sem hann var í vitorði með konunni um geymslu á fyrrnefndum fíkniefnagróða.- jss
Dómsmál Fréttir Innlent Mest lesið Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Innlent Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Innlent Segja stutt í samkomulag en sprengjum rignir enn Erlent „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent Var að streyma á TikTok þegar hann féll til jarðar og lést Erlent Eldur í þvottahúsi á Granda Innlent Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Innlent Skoðanabróðir Orbans og Fico vinnur kosningar í Tékklandi Erlent Alelda bíll á Reykjanesbraut Innlent Fjöldi án rafmagns vegna vonskuveðurs í Noregi Erlent Fleiri fréttir Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Eldur í þvottahúsi á Granda Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Fokdýrar flugferðir, ögurstund á Gasa og óvenjulegt innbrot Boða íbúafundi vegna mögulegrar sameiningar sveitarfélaganna Alelda bíll á Reykjanesbraut Framkvæmdirnar komi eftir ákall frá íbúum Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Skrítin afstaða BSRB og ASÍ Tekist á um leikskólamál og árásir á Gasa Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Rannsaka mögulega stunguárás Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast „Af hverju ertu svona í framan?“ „Algjörlega alveg út í hött“ Umferðin færist inn á íbúðagötur Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Vann á öllum deildum leikskólans Segja Rússa heyja stríð við Vesturlönd og síðustu ævidagarnir á Grund „Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“ Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Fresta framkvæmdum vegna veðurs Sýnist komið að seinni hluta í eldsumbrotum í Sundhnúksgígaröðinni Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Varaformannsslagur í Miðflokknum: Öll vinir og „peppuð“ fyrir landsþingi Stöðfirðingum enn ráðlagt að sjóða vatn vegna mengunar Sjá meira