Niðurlæging í nótt - Boston og Lakers spila hreinan úrslitaleik Hjalti Þór Hreinsson skrifar 16. júní 2010 09:00 Kobe klárar í nótt. AP
Los Angeles Lakers gerði lítið úr Boston Celtics í sjötta leik liðanna í nótt. Boston gat tryggt sér titilinn en var aldrei líklegt til þess. Lokatölur 89-67. Lakers gaf tóninn strax í fyrsta leikhluta sem það vann 28-18. Það vann með tíu stigum í næsta leikhluta og leiddi 51-31 í leikhléi. Leikurinn í raun búinn í hálfleik. Boston klóraði ögn í bakkann í síðari hálfleik en Lakers vann þó þriðja leikhluta með fimm stigum. Leikurinn var algjörlega dauður í fjórða leikhluta sem endaði 13-16 fyrir Boston. Stigaskorið hjá Boston var það næst lægsta í sögu lokaúrslitanna og þá fór liðið aðeins tíu sinnum á vítalínuna. Niðurstaðan er sú að það verður þjóðhátíðarstemning í Staples Center á fimmtudaginn þegar liðin spila sögulegan úrslitaleik. Kobe Bryant skoraði 26 stig fyrir Lakers og tók ellefu fráköst, Pau Gasol skoraði sautján og tók 13 fráköst og Ron Artest skoraði fimmtán stig. Ray Allen skoraði 19 stig fyrir Boston og Paul pierce þrettán. Aðeins þrisvar hafa lokaúrslitin ráðist á oddaleik frá því 2-3-2 keppnisfyrirkomulagið var tekið upp árið 1985. Í þessum þremur tilvikum hefur heimaliðið alltaf unnið sjöunda leikinn. LA Lakers ´88, Houston Rockets 1994 og San Antonio Spurs 2005. Lakers verður á heimavelli á fimmtudaginn og hefur því söguna með sér.
NBA Mest lesið Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Enski boltinn Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Íslenski boltinn Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Enski boltinn „Mér er alveg sama hvað aðrir halda“ Körfubolti Ólympíufarar notuðu yfir tvo smokka á dag Sport Þorsteinn Leó öflugur í sigri Porto Handbolti Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Enski boltinn „Það var eins og við værum á heimavelli“ Sport Dagskráin í dag: Enski bikarinn á sviðið Sport Jón Dagur skoraði beint úr aukaspyrnu í fyrsta leik sínum með Brann Fótbolti Fleiri fréttir „Mér er alveg sama hvað aðrir halda“ Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll 113-76 Ármann | Stólarnir ekki í vandræðum í Síkinu Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 99-105 | Grindavík styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar „Þetta ætti að smella bara eins og flís við rass“ LeBron James elstur til að ná þrefaldri tvennu Uppgjörið: Valur - ÍA 102-85 | Valsmenn aftur á sigurbraut „Ekkert frábær körfuboltaleikur“ Orri: Það bara kviknaði á mér KR - Álftanes | Brosandi bikarmeistarar fögnuðu sigri eftir mikla spennu Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 113-103 | Lífið heldur áfram eftir brostinn bikardraum Uppgjör: ÍR - Þór Þ. 75-78 | Þórsarar sóttu gríðarmikilvægan sigur Lifir draumurinn eða raungerist leðjuslagur á botninum? Mun bera vitni gegn gamla kærastanum sem keyrði hvað eftir annað á hana Refsað tvisvar vegna sama brots en vika leið á milli Shabazz á Krókinn Uppgjörið: Grindavík - Valur 66-89| Valur fór afar illa með Grindavík Njarðvík vann nýliðana í framlengingu og Stólarnir sóttu sigur til Þorlákshafnar Tryggvi og félagar fara taplausir áfram LeBron James er útilokaður frá öllum verðlaunum Eins leiks bann og sekt fyrir hnefahöggið Mikið högg fyrir Grindvíkinga Almar og félagar standa einir eftir ósigraðir í háskólakörfunni Keyrði margoft á bíl körfuboltakonunnar Mikilvægur sigur Tindastóls sem fær heimavallarrétt í Evrópu Nýkrýndir bikarmeistarar urðu undir á Meistaravöllum Uppgjörið: Stjarnan 71-74 Haukar | Íslandsmeistararnir tylla sér á toppinn Fjórum hent úr húsi eftir hópslagsmál Ljúft eftir að hafa tapað tveimur úrslitaleikjum í röð Bylting í útsendingum frá íslenskum körfubolta Jókerinn tók fram úr goðsögn Sjá meira