Nýliði hjá Utah tryggði liðinu sigur á Cleveland í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2010 09:00 Sundiata Gaines í leiknum í nótt. Mynd/AP
Nýliðinn Sundiata Gaines tryggði Utah Jazz 97-96 sigur á Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en leikið var á Salt Lake City. Gaines skoraði sigurkörfuna með þriggja stiga skoti um leið og klukkan rann út en þetta var fyrsta þriggja stiga karfan hans á NBA-ferlinum. Cleveland var sex stigum yfir í leiknum þegar aðeins 32,5 sekúndur voru eftir af leiknum en Utah nýtt lokasekúndurnar vel á sama tíma og leikmenn Cleveland brugðust á vítalínunni. Sundiata Gaines skoraði alls níu stig í leiknum á níu mínútum en hann hitti úr öllum skotum sínum utan af velli. Gaines var aðeins að leika sinn fimmta leik í NBA eða síðan að hann gerði tíu daga samning við Jazz-liðið eftir að Deron Williams meiddist á hendi. LeBron James skoraði 20 af 36 stigum sínum í fjórða leikhluta en hann var auk þess með 9 fráköst, 6 stoðsendingar og 5 stolna bolta. Carlos Boozer var með 19 stig, 13 fráköst og 6 stoðsendingar hjá Utah. Chicago Bulls vann þrettán stiga útisigur á Boston Celtics, 96-83, í hinum leik NBA-deildarinnar í nótt. Luol Deng var með 25 stig í aðeins öðrum sigri liðsins í síðustu tólf útileikjum. Derrick Rose bætti við 17 stigum fyrir Bulls-liðið og Joakim Noah var með 15 stig, 11 fráköst og 4 varin skot en þetta var þriðji sigur Chicago í röð. Paul Pierce skoraði 20 stig fyrir Boston og Rajon Rondo var með 15 stig en þetta var 6 heimatap liðsins í 17 leikjum á tímabilinu sem er jafnmörg heimatöp og undanfarin tvö heil tímabil.
NBA Mest lesið BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Körfubolti Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira