Fullt stím áfram 10. mars 2009 05:00 Í framhaldi af þeirri ákvörðun Inigibjargar Sólrúnar Gísladóttur að draga sig í hlé frá stjórnmálum um sinn a.m.k., er ljóst að landsfundur SF verður að velja flokknum nýjan formann í aðdraganda kosninga til næstu tveggja ára. Þú hefur þegar tekið að þér að leiða minnihlutastjórn SF og VG fram að kosningum. Í því felst að þar með hefur þú í reynd einnig tekið að þér það hlutverk að leiða Samfylkinguna í kosningabaráttunni. Enginn véfengir að í þessum erfiðu verkum nýtur þú óskoraðs trausts samherja þinna og meirihluta þjóðarinnar. Ég þykist vita af fyrri reynslu að þú viljir klára þau verk sem þú tekur að þér. Samfylkingin þarf að ganga sameinuð til kosninga undir þeirri ótvíræðu forystu, sem verkstýrir viðreisnarstarfinu í ríkisstjórn. Saman þurfa að fara orð og efndir. Ég veit að ég tala fyrir munn margra Samfylkingarfélaga þegar ég nú skora á þig að endurskoða afstöðu þína til formannskjörs. Endanlega ákvörðun getur vel beðið úrslita forvals í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi á helginni. „Festina lente" sögðu Rómverjar forðum og vissu hvað þeir sungu. Stundum er í lagi að flýta sér hægt. En að tekinni ákvörðun á réttum tíma ber að setja á „fullt stím - áfram". Höfundur er fyrrverandi ráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jón Baldvin Hannibalsson Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson Skoðun Fúsk eða laumuspil? Eva Hauksdóttir Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Virðum réttindi intersex fólks Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun Ha ég? Já þú! Ekki satt! Hver þá? Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samfélagslegur spegill lögreglumannsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Rétt klukka síðan 1968: Höldum í síðdegisbirtuna Erlendur S. Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Í framhaldi af þeirri ákvörðun Inigibjargar Sólrúnar Gísladóttur að draga sig í hlé frá stjórnmálum um sinn a.m.k., er ljóst að landsfundur SF verður að velja flokknum nýjan formann í aðdraganda kosninga til næstu tveggja ára. Þú hefur þegar tekið að þér að leiða minnihlutastjórn SF og VG fram að kosningum. Í því felst að þar með hefur þú í reynd einnig tekið að þér það hlutverk að leiða Samfylkinguna í kosningabaráttunni. Enginn véfengir að í þessum erfiðu verkum nýtur þú óskoraðs trausts samherja þinna og meirihluta þjóðarinnar. Ég þykist vita af fyrri reynslu að þú viljir klára þau verk sem þú tekur að þér. Samfylkingin þarf að ganga sameinuð til kosninga undir þeirri ótvíræðu forystu, sem verkstýrir viðreisnarstarfinu í ríkisstjórn. Saman þurfa að fara orð og efndir. Ég veit að ég tala fyrir munn margra Samfylkingarfélaga þegar ég nú skora á þig að endurskoða afstöðu þína til formannskjörs. Endanlega ákvörðun getur vel beðið úrslita forvals í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi á helginni. „Festina lente" sögðu Rómverjar forðum og vissu hvað þeir sungu. Stundum er í lagi að flýta sér hægt. En að tekinni ákvörðun á réttum tíma ber að setja á „fullt stím - áfram". Höfundur er fyrrverandi ráðherra.