Naumur sigur Chelsea á Newcastle 13. desember 2006 21:56 Didier Drogba og Andriy Shevchenko fagna hér sigurmarki þess fyrrnefnda gegn Newcastle á Stamford Bridge í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Chelsea minnkaði forskot Manchester United niður í fimm stig á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið vann nauman 1-0 sigur á Newcastle á heimavelli sínum. Arsenal vann sömuleiðis 1-0 útisigur í Wigan í baráttuleik. Chelsea gekk erfiðlega að brjóta þrjóska leikmenn Newcastle á bak aftur og liðið var nálægt því að lenda undir þegar Antoine Sibierski átti skalla í slánna á Chelsea-markinu. Það var svo hinn leikræni Didier Drogba sem bjargaði meisturunum fyrir horn þegar hann skoraði sigurmark Chelsea á 74. mínútu eftir að hafa komið inn sem varamaður. Arsenal skaust í þriðja sætið með naumum sigri á Wigan á útivelli 1-0 með marki frá Emmanuel Adebayor í blálokin. Wigan fékk fjölda færa í leiknum og fóru þeir Henry Camara og Emile Heskey illa með færi sín. Þremur mínútum fyrir leikslok átti svo varamaðurinn Cesc Fabregas góða sendingu á Adebayor sem gerði út um leikinn fyrir gestina. Loks tryggði Blackburn sér sigur í riðli sínum í Evrópukeppni félagsliða með 1-0 sigri á franska liðinu Nancy þar sem Lucas Neill skoraði sigurmark Blacburn á 89. mínútu.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Joshua í bílslysi þar sem tveir létust Sport Þreytt á umræðu um líkamann sinn: „Á ekki að tjá sig um það“ Sport Hneysklaður á ósönnum orðrómum Fótbolti Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Enski boltinn Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Fótbolti Þetta er vitað um banaslysið sem Anthony Joshua slapp lifandi úr Sport „Þegar þú spilar við Gary Anderson er alltaf pláss fyrir flugeldasýningu“ Sport Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Enski boltinn Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Semenyo vill að allt verði klárt fyrir nýársdag Enski boltinn Fleiri fréttir Gefur í skyn að Arsenal opni veskið í janúar „Einn mesti hugsuðurinn í boltanum“ Semenyo vill að allt verði klárt fyrir nýársdag „Knattspyrnustjórar eru ekki töframenn“ Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Skynjar stress hjá Arsenal Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Sjá meira