Solskjær verður betri með aldrinum 1. október 2006 18:10 Sir Alex var mjög ánægður með leik sinna manna í dag enda er United komið á toppinn á ný NordicPhotos/GettyImages
Sir Alex Ferguson var að vonum ánægður með framlag sinna manna eftir 2-0 sigur á Newcastle í dag og þótti sérstök ástæða til að minnast á frammistöðu þeirra Ole Gunnar Solskjær og Cristiano Ronaldo. Hann segir liðið vera aftur að finna taktinn í deildinni. "Það er erfitt að hugsa sér að leikmaður geti verið að vaxandi þegar hann er orðinn 33 ára gamall - en sú er raunin með Ole Gunnar. Hann er búinn að vera frá meira og minna í tvö ár og þá hefur maður eðlilega sínar efasemdir, en hann er búinn að vera frábær það sem af er í vetur," sagði Ferguson um Norðmanninn markheppna og hrósaði Cristiano Ronaldo í leiðinni - en sá átti þrjú stangarskot í leiknum. "Cristiano er ekki nema 21 árs gamall, en leikskilningur hans er alltaf að verða betri og betri. Hann átti í vandræðum á HM, en ég hef alltaf sagt að hann gæti átt eftir að verða stórkostlegur leikmaður. Hann er ótrúlegur íþróttamaður," sagði Ferguson og bætti við að liðið væri nú óðum að finna formið sem það var í framan af leiktíðinni.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira