Ísland lagði Lúxemburg 13. september 2006 22:00 Jón Arnór Stefánsson meiddist á ökkla og þurfti að fara af leikvelli gegn Lúxemburg í kvöld Mynd/Anton Brink
Íslenska A-landsliðið í körfubolta vann í kvöld sannfærandi 98-76 sigur á Lúxemburg í B-deild Evrópukeppninnar en leikið var í Keflavík. Íslenska liðið byrjaði af miklum krafti í kvöld og lét gott forskot sitt aldrei af hendi. Íslenska liðið hafði 25-12 forystu eftir fyrsta leikhluta, leiddi 50-31 í hálfleik og 73-60 eftir þrjá leikhluta. Forysta íslenska liðsins var mest 24 stig í leiknum. Jón Arnór Stefánsson meiddist á ökkla eftir aðeins þriggja mínútna leik og þurfti að fara af leikvelli. Hann reyndi síðar í leiknum að koma aftur inn í leikinn, en þurfti frá að hverfa. Jón fer í myndatöku á morgun og þar fær væntanlega úr því skorist hvort hann kemst með íslenska liðinu í útileikinn gegn Austurríkismönnum á laugardaginn. Brenton Birmingham átti enn einn stórleikinn fyrir íslenska landsliðið í kvöld og skoraði 24 stig, Logi Gunnarsson skoraði 23 stig, Jakob Sigurðarson skoraði 11 stig og gaf 8 stoðsendingar, Fannar Ólafsson skoraði 10 stig, Páll Axel Vilbergsson skoraði 8 stig, líkt og Magnús Gunnarsson.Alvin Jones, öflugasti leikmaður Lúxemburg, var rekinn í bað í þriðja leikhluta eftir að hafa skorað 14 stig og hirt 13 fráköst og munaði um minna hjá gestunum.
Innlendar Íþróttir Íslenski körfuboltinn Mest lesið Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Chelsea áfram eftir tveggja klukkutíma töf og framlengingu Fótbolti Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti Stelpurnar okkar mættar í paradísina Fótbolti FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Fótbolti Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Dagskráin í dag: Besta deildin og Formúla 1 Sport Bonny til Inter Fótbolti Fleiri fréttir Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Sjá meira