Innlent

Starfshópur gerir tillögur að tryggu netsambandi

MYND/GVA

Samgönguráðherra hefur skipað starfshóp sem gera á tillögu að því hvernig tryggja megi varanetsamband við útlönd í framtíðinni. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, Samfylkingunni, um hvernig tryggja ætti netsamband við útlönd.

Björgvin benti á að samband um Farice-strenginn hefði ítrekað rofnað á undanfarna mánuði en ráðherra sagði að það hefði aðallega verið á landi og von væri á varaleið á Bretlandi. Stjórnarandstæðingar lögðu áherslu á að starfshópur ráðherra ynni hratt enda óboðlegt að öryggt netsamband væri ekki tryggt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×