Rekstur flugvallarins og björgunarsveitirnar undir 3. febrúar 2006 12:08 Geir Haarde utanríkisráðherra.
Yfirtaka Íslendinga á rekstri Keflavíkurflugvallar og aðkoma að leitar- og björgunarsveit eru helstu atriðin sem samningamenn Íslands leggja fram í viðræðum við Bandaríkjamenn um framtíð varnarliðsins, segir Geir H. Haarde utanríkisráðherra sem átti fund með utanríkismálanefnd á tólfta tímanum.Fundinum lauk laust fyrir tólf og fór Geir af fundi án þess að gefa sér tóm til að ræða við fjölmiðla enda dagskrá hans þéttskipuð í dag. Hann ræddi hins vegar við fjölmiðla eftir ríkisstjórnarfund, rétt áður en hann hélt á fund utanríkismálanefndar. Þar sagðist hann vonast til að ná samkomulagi enda væri mikilvægt að fá niðurstöðu sem fyrst, hvort tveggja fyrir landvarnir hér og fyrir bandamenn Íslands.Geir sagði lykilatriði að halda orustuþotunum fjórum sem hér eru. "Fjórar þotur eru lágmark í huga allra sem þekkja til þessara mála," sagði Geir.Þórunn Sveinbjarnardóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd, fagnar því að tekist hafi að fá Bandaríkjamenn að samningaborðinu og að efnislegar viðræður væru hafnar. Hún sagði hins vegar erfitt að leggja mat á þetta að öðru leyti því stjórnarandstaðan hefði ekki fyllstu upplýsingar um málið.Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri-grænna og fulltrúi þeirra í utanríkismálanefnd, segist ekki líta svo á að með þessu sé verið að greiða fyrir landvarnir. Hérna sé fyrst og fremst um borgaralega starfsemi, svo sem rekstur flugvallarins og björgunarsveitar. "Mér finnst þetta allt saman horfa í rétta átt."
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Fleiri fréttir Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Sjá meira