Íslandsmet í skattpíningu 26. janúar 2006 22:22 Mynd/GVA
Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í utandagskrárumræðum á Alþingi í dag um breytingar á skattbyrði, að þrír síðustu fjármálaráðherrar Íslands ættu Íslandsmet í skattpíningu á almenningi. Þá vísaði hún í grein Stefáns Ólafssonar prófessors þess efnis að skattbyrði hefði aukist hjá heimilum með lágar og meðaltekjur eða hjá 90 prósentum heimila. Jóhanna sagði almenning þurfa að greiða minnst einum mánaðartekjum meira í skatt á ári nú en fyrir tíu arum síðan. Sagði hún að skattbyrði á almenning hefði vísvitandi verið aukin síðustu tíu ár eins og Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefði viðurkennt. Fleiri stjórnarandstöðuþingmenn tóku til máls. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, sagði fullkomið gap að verða á milli ríkra og þeirra sem lægstu launin hefðu. Guðjón A. Kristjánsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði hátekjufólk hafa notið verulegs hagræðis með skattabreytingarstefnu ríkisstjórnarinnar. Aðrir stjórnarandstöðuþingmenn tóku í svipaðan streng. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var á meðal þeirra sem komu ríkisstjórninni til varnar. Hann sagði atvinnulausum hafa fækkað og að námsmönnum, útlendingum og öldruðum hefði öllum fjölgað á Íslandi og að þessir hópar væru á meðal þeirra tekjulægstu í landinu. Árni Mathiesen fjármálaráðherra var einnig til andsvara og sagði ríkisstjórnina hafa lækkað skatta á sama tíma og hún hefði styrkt velferðarkerfið.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Fleiri fréttir Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Sjá meira