Útsýni forseta bæjarstjórnar á Álftanesi 13. desember 2006 05:00 Yfirlýsing Henrik Thorarensen Vegna yfirlýsingar Kristjáns Sveinbjörnssonar í Fréttablaðinu laugardaginn 10.12.2006 varðandi lóðina að Miðskógum 8 vil ég að eftirfarandi komi fram: Kristján hefur persónulega staðið í málaferlum vegna eignarhalds á lóðinni árum saman. Hann hefur tapað öllum þessum málaferlum og því marg sannreynt af dómstólum að enginn efi leikur á eignarhaldi lóðarinnar. Það er því mál að linni og að Kristján sætti sig við að hann á ekkert tilkall til þessarar lóðar og tilburðir hans við framkvæmdir og notkun á lóðinni eru með öllu óásættanlegir. Umdeilda málsmeðferð vegna veitingu byggingaleyfis á lóðinni, hefur hann ekki aðeins gert að máli bæjarfélagsins heldur reynir hann að snúa málinu í pólitískan slag við samstarfsmenn sína í minnihluta bæjarstjórnar til að hylma yfir persónulegu hagsmunamáli. Bókun D-listans vegna meðferðar málsins hjá bæjarráði sýnir glöggt hvað hér hefur verið í gangi í það tæpa ár sem umsóknin hefur legið inni án þess að fá réttmæta afgreiðslu. Málið var til umfjöllunar í byggingarnefnd frá því í desember 2005 og fram til 13. nóvember 2006. Samkvæmt gildandi deiluskipulagi frá 1980, er lóðin Miðskógar 8 tiltekin sem íbúðarlóð og er byggingarreitur markaður fyrir einbýlishús,á sama stað og þar sem áður voru hús. Í aðalskipulagi Álftanes fyrir árin 2005 til 2024, er Miðskógarsvæðið þ.á.m. þessi lóðskilgreind sem íbúðarbyggð. Lóðin er þinglýst sem byggingarlóð hjá sýslumanninum í Hafnarfirði. Vegna aðgerða Kristjáns hefur málið í tvígang verið sent til umsagnar Skipulagsstofnunar undanfarin misseri og í áliti stofnunarinnar kemur fram að fyrirhuguð bygging á lóðinin brýtur ekki í bága við náttúrverndarlög enda voru byggingar á lóðinni áður. Það var álit Skipulagsstofnunar að lóðin væri byggingalóð enda aðeins lítill partur lóðarinnar sem nær niður í stórstraumsfjöru og fjarri byggingarreit. Einnig var það álit Skipulagsstofnunar að deiliskipulag frá 1980 væri gilt. Þá liggja fyrir tvö lögfræðiálit, sérstakur ráðgjafi bæjarstjóra í skipulagsmálum hefur skoðað málið ítarlega, embættismenn bæjarfélagsins hafa komið að því, rætt hefur verið við Siglingastofnun og eflaust fleiri aðila. Þessar tilraunir meirihlutans undir forystu Kristjáns, til að finna lögmæta ástæðu til að hafna umsókn um byggingaleyfi, hafa engan árangur borið. Allir þessir aðilar hafa gefið það einróma álit að ekkert sé því til fyrirstöðu að veita hið umbeðna leyfi til byggingar á lóðinni. Síðasta aðgerð meirihlutans, (vísun í bókun frá bæjarráðsfundi 13 nóv), er að hafna umsókn um byggingaleyfi, svæðið á að setja í nýtt deiliskipulagsferli, jafnvel þó að þar séu fáar lóðir óbyggðar. Fyrirætlanir Kristjáns eru augljósar, hann ætlar með öllum ráðum að halda útsýninu. Lóðin er yfir 1400 m2(algeng stærð á lóðum er 800m2), fyrirhugað hús er 268m2 og því af sömu stærðargráðu og þau hús sem að eru á næstu lóðum.. Við Skógartjörn standa mörg hús í svipaðri afstöðu til tjarnarinnar og fyrirhugað hús . Á ‘Alftanesi eru mörg hús sem standa nær opnu hafi og neðar en húsin við Skógartjörn. Áform um lausnir á fráveitumálum taka ekki mið af þessu eina húsi heldur hljóta þau mál að vera skipulögð í samræmi við alla byggðina við tjörnina. Í kjölfar þeirra greinaskrifa sem um málið voru í síðustu viku, hef ég fengið fjölda upphringinga frá fólki sem ofbýður ofríki og yfirgangur Kristjáns. Mikið af þessu fólki eru nágrannar og skattgreiðendur á Álftanesi. Ég hvet alla íbúa Álftaness og þá sem að áhuga hafa á stjórnsýsluháttum í lýðræðisþjóðfélagi að skoða þetta mál þar sem kjörin fulltrúi fólksins er að misnota vald sitt í persónulega þágu og ýtir bæjarfélaginu út í dýrkeypt skaðabótamál. Höfundur er eigandi lóðarinnar að Miðskógum 8 Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðun Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson Skoðun Skoðun Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar