Telur piltinn í hættu í fangelsi 10. ágúst 2006 07:00 Hæstiréttur Héraðsdómur hafði dæmt piltinn í gæsluvarðhald til 24. október en Hæstiréttur stytti það til 27. september.
Hæstiréttur stytti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir nítján ára pilti sem stakk föður sinn í síðuna með hnífi aðfaranótt 17. júní. Einn dómaranna skilaði sératkvæði í málinu og telur piltinn í hættu í fangelsi. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn í gæsluvarðhald til 24. október en Hæstiréttur stytti varðhaldið til 27. september. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að pilturinn hafi verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, en faðir piltsins hlaut lífshættulega áverka af stungunni. Einn dómaranna þriggja sem málið dæmdu, Hjördís Hákonardóttir, skilaði sératkvæði þar sem hún taldi áframhaldandi gæsluvarðhald ekki nauðsynlegt og lagði til að dómur héraðsdóms yrði felldur úr gildi. Segir hún ljóst af gögnum málsins að pilturinn hafi stungið föður sinn eftir að faðirinn ögraði honum. Pilturinn hafi ekki áður orðið uppvís að hegningarlagabrotum og geðlæknir telji persónuleika og sálarástand piltsins þess eðlis að honum sé hætta búin af lengri fangavist. Þá tekur hún fram að geðlæknir telji enga hættu stafa af piltinum og að meðferðarráðgjafi segi að ekkert bendi til þess að hann sé afbrota- eða ofbeldishneigður.
Innlent Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Fleiri fréttir Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sjá meira