Ríkisstjórnin tilbúin að greiða fyrir samningum 15. nóvember 2005 17:40
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar : „Ríkisstjórnin lýsir sig reiðubúna til samstarfs við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins um leiðir sem, auk aðgerða á vettvangi lífeyrissjóðanna sjálfra, draga úr vaxandi örorkubyrði lífeyrissjóða og jafna stöðuna milli einstakra sjóða. Til að vinna að framgangi þessa máls mun forsætisráðherra skipa nefnd fulltrúa stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins og lífeyrissjóða. Verkefni nefndarinnar verði meðal annars að gera tillögur um samræmingu á viðmiðunum til örorkumats í almannatryggingakerfinu annars vegar og lífeyrissjóðakerfinu hins vegar þar sem fyrst og fremst verði horft til vangetu einstaklinga til að afla sér tekna. Jafnframt fjalli nefndin um leiðir til að efla starfsendurhæfingu í því skyni að hjálpa einstaklingum sem af einhverjum ástæðum hafa ekki fest rætur á vinnumarkaði eða þurft að hverfa af vinnumarkaði vegna atvinnuleysis eða örorku. Áhersla verði lögð á að bjóða einstaklingsmiðaða þjónustu þar sem litið verði til starfsgetu einstaklinganna. Jafnframt verði kerfið gert einfaldara og skilvirkara og tryggð betri yfirsýn yfir þau úrræði sem eru í boði hverju sinni. Við frekari útfærslu skal meðal annars tekið mið af niðurstöðum nefndar um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir sbr. 4. lið. Ríkisstjórn og aðilar vinnumarkaðarins munu koma sameiginlega að fjármögnun þessara aðgerða sem hafi það að markmiði að sem flestir verði aftur virkir á vinnumarkaði. Ríkisstjórnin lýsir því jafnframt yfir að hún er reiðubúin til að greiða fyrir jöfnun á örorkubyrði milli lífeyrissjóða á samningssviði Alþýðusambands Íslands og Samtakaatvinnulífsins með framlagi sem svarar til 0,25% af tryggingagjaldsstofni samkvæmt nánari útfærslu milli aðila og komi til framkvæmda á þremur árum, 0,15% 2007, 0,20% 2008 og 0,25% 2009. 2. Þá hefur ríkisstjórnin ákveðið, í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins, að beita sér fyrir sérstöku átaki til að efla starfs- og endurmenntun ófaglærðra og einstaklinga með litla menntun, jafnframt því að bæta stöðu erlends vinnuafls í íslensku samfélagi. Áætlað er að kostnaður vegna þessa nemi 100 m.kr. á árinu 2006. • Í fyrsta lagi hefur verið ákveðið að fela Fræðslumiðstöð atvinnulífsins að útbúa námsefni og þjálfa leiðbeinendur í íslenskukennslu fyrir útlendinga. Með því er leitast við að koma til móts við þarfir útlendinga sem leita fótfestu á íslenskum vinnumarkaði og bæta félagslega stöðu þeirra. • Í öðru lagi er gert ráð fyrir sérstökum framlögum úr ríkissjóði til að greiða fyrir námskeiðahald og endurmenntun einstaklinga á vinnumarkaði sem leggja stund á nám sem byggir á námskrám sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur vottað og menntamálaráðuneytið staðfest. símenntunarmiðstöðvum, sem starfræktar eru um land allt, verður falið að annast þetta nám. • Í þriðja lagi er gert ráð fyrir því að framhald verði á samstarfi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og menntamálaráðuneytisins um svokallað mat á raunfærni sem miðar að því að leggja mat á fyrra nám og færni einstaklinga sem vilja bæta við sig menntun. • Í fjórða lagi hefur verið ákveðið að efla náms- og starfsráðgjöf fyrir ófaglærða og þá sem litla menntun hafa. Menntamálaráðuneytið og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins munu láta fara fram athugun á því hvernig þeim stuðningi verði fyrir komið þannig að hann nýtist sem best og fleiri nýti sér þau sí- og endurmenntunartækifæri sem í boði eru. Í þessu skyni verður auknum fjármunum veitt til að standa straum af einstaklingsmiðaðri starfs- og námsráðgjöf á vegum símenntunarstöðvanna um land allt. 3. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að lög um starfsmannaleigur verði samþykkt fyrir jólahlé Alþingis. Í frumvarpinu verði kveðið á um eftirfarandi meginatriði sem verði skilyrði fyrir því að starfsmannaleigur starfi hér á landi: • Starfsmannaleiguþjónusta verði skráningarskyld hér á landi. • Starfsmannaleigur sem veita þjónustu á Íslandi samtals lengur en 10 virka daga á hverjum 12 mánuðum skulu hafa fulltrúa hér á landi og veita Vinnumálastofnun tilteknar upplýsingar um starfsemi sínar hér á landi áður en vinna hefst. • Starfsmannaleigum sem hafa staðfestu utan Evrópska efnahagssvæðisins eða EFTA ríkja verði óheimilt að veita hér þjónustu nema samningar sem Ísland á aðild að heimili. • Starfsmannaleigum verði óheimilt að krefja, semja um eða taka á móti greiðslum frá starfsmönnum fyrir að bjóða eða veita þeim vinnu, hvort sem er við upphaf ráðningarsambands eða síðar. • Starfsmannaleigur skulu gera skriflega áðningarsamninga við starfsmenn sína. • Vinnumálastofnun verði gert heimilt að óska eftir upplýsingum sem stofnunin telur nauðsynlegar til að fylgjast með framkvæmd laganna frá starfsmannaleigum, þ.m.t. ráðningarsamningar og ráðningarkjör. 4. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir lagasetningu um breytingar á greiðslu atvinnuleysisbóta í samræmi við það samkomulag sem nú liggur fyrir milli Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Þar er meðal annars gert ráð fyrir sérstakri hækkun lágmarksbóta, tekjutengingu atvinnuleysisbóta, styttingu greiðslutímabils o.fl. Þessar aðgerðir verða fjármagnaðar með greiðslum úr atvinnuleysistryggingasjóði en sameiginlegur skilningur er á milli aðila um að ekki sé ástæða til að hækka atvinnutryggingagjald við gildistöku laganna þar sem sjóðurinn hafi svigrúm til að fjármagna þessar breytingar miðað við núverandi atvinnuleysisstig. Samkomulagið er í anda þeirrar niðurstöðu sem náðist í nefnd um atvinnleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir sem skilaði félagsmálaráðherra skýrslu 9. nóvember 2005. Frekara mið skal tekið af niðurstöðum nefndarinnar við úrbætur á sviði atvinnuleysisbóta og vinnumarkaðsaðgerða svo sem varðandistarfsendurhæfingu sbr. 1. tölulið. Reykjavík, 15. nóvember 2005“
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent Fleiri fréttir Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Sjá meira