Treysta Stefáni Jóni betur 12. nóvember 2005 10:30 MYND/Pjetur
Sextíu og sjö prósent þeirra borgarbúa sem taka afstöðu treysta Stefáni Jóni Hafstein betur en Steinunni Valdísi Óskarsdóttur sem næsta borgarstjóra. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Frjálsrar verslunar. Þá fengi Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í borgarstjórn ef kosið yrði nú. Könnun Frjálsrar verslunar var gerð í vikunni fyrir vefsíðuna Heimur.is en niðurstöðurnar voru birtar í gær. Úrtakið í könnuninni var rúmlega 560 manns. Spurt var: Hvoru treystir þú betur sem borgarstjóra, Stefáni Jóni Hafstein eða Steinunni Valdísi Óskarsdóttur?. Um 27% vildu hvorugt, 16% voru óviss og 4% neituðu að svara. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 67% treysta Stefáni Jóni betur en um 33% Steinunni Valdísi. Meðal þeirra sem styðja Samfylkinguna var Stefán með um tvo þriðju hluta fylgisins. Innan þess hóps sjálfstæðismanna sem tók afstöðu til frambjóðendanna tveggja var traust til Stefáns einnig mun meira, eða um 67%. Mjórra var á mununm hjá Vinstri grænum þar sem naumur meirihluti lýsti meira trausti á Stefáni Jóni en meirihluti þeirra fáu framsóknarmanna sem lentu í úrtakinu treysti Steinunni Valdísi betur Í könnun Frjálsrar verslunar var einnig spurt hvaða flokk fólk hygðist kjósa í borgarstjórnarkosningunum næsta vor. Af þeim sem tóku afstöðu nefndu 53% Sjáfstæðisflokkinn, tæp 31% Samfylkinguna og rúm 10% Vinstri græna. Aðrir flokkar kæmu ekki að manni. Margir aðspurðra sögðust ekki hafa gert upp hug sinn, eða 26% af þeim 564 sem spurðir voru í könnuninni. Sex prósent vildu ekki svara og um fjögur prósent kváðust ekki ætla að kjósa eða skila auðu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Fleiri fréttir Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Sjá meira