Engin kona forstjóri skráðu félagi 14. október 2005 00:01
Engin kona er forstjóri í skráðu fyrirtæki í Kauphöll Íslands og konur eru aðeins sjö komma fjögur prósent stjórnarmanna. Nefnd, sem Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra skipaði, hefur kynnt tillögur um hvernig fjölga megi konum í stjórnum fyrirtækja. Nefndin leggur til að farvegur fyrir umræðu og þekkingaröflun verði tryggður, reglulega verði birtur listi með upplýsingum um fjölda og hlutfall kvenna í stjórnum, tengsl kvenna innbyrðis og við karla verði efld, leitarskilyrði og sjóndeildarhringur við skipan í stjórnir verði víkkaður, fyrirtæki verði hvött til að setja konur á dagskrá og karlar í áhrifastöðum fengnir til að gera málið að sínu. Þetta kom fram á blaðamannafundi hjá viðskiptaráðherra í morgun. Þar kom einnig fram að Íslendingar standa jafn illa og jafnvel verr en helstu nágrannaþjóðir hvað hlutfall kvenna í forystu fyrirtækja varðar. Norðmenn standa þó best en konur eru tæp 22 prósent stjórnarmanna þegar 500 stærstu fyrirtækin eru skoðuð. Íslendingar standa verst norðurlandaþjóða með rúm ellefu prósent þegar fimm hundruð stærstu fyrirtækin eru skoðuð. Fjörug umræða hefur verið meðal hinna norðurlandaþjóðanna um hvort tryggja eigi konum setu í stjórnum með lagasetningu og hafa Norðmenn þegar sett slík lög. Á fundinum í morgun kom fram að Íslendingar hefðu verið mótfallnir lagasetningu til að rétta hlut kvenna en Þóranna Jónsdóttir, höfundur skýrslu um Aukin tækifæri kvenna í forystu atvinnulífsins, segir Íslendinga hafa verið mótfallna lagasetningu. Hún heyri hins vegar aukinn vilja í þá átt að skoða hvort ekki þurfi að beita handafli til að fá viðhorfsbreytingu fram. Valgerður Sverrisdóttir viðkskiptaráðherra kvaðst mótfallin lagasetningu en ekki útiloka að hún skipti um skoðun á síðari stigum ef hægt miðaði í jafnréttisátt en Þór Sigfússon, forstjóri Viðskiptaráðs og formaður nefndarinnar, var algjörlega mótfallinn lagasetningu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent Fleiri fréttir Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Sjá meira