Landsbankinn traustari en Framsókn 9. júní 2005 00:01
Björgólfur Guðmundsson svaraði Valgerði Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, fullum hálsi í útvarpsviðtali á Bylgunni um hádegi í gær. Um morguninn hafði Valgerður sagt það óæskilegt að Björgólfsfeðgar eignuðust Íslandsbanka og sagt að þeir ginu yfir öllu kviku á markaði. Björgólfur var harðorður í viðtalinu. "Ef hún á við þessi seinustu tíðindi um Íslandsbanka þá er það nú Burðarás sem keypti. Eimskip er farið yfir í hendur annarra manna svo ekki erum við að gína yfir því þannig að ég skil ekki alveg hvað hún er að fara." Björgólfur benti einnig á að Landsbankinn væri hlutafélag og sagði hann njóta mikils trausts meðal viðskiptamanna sinna, en bætti því við að öðru máli kynni að gegna um Framsóknarflokkinn og kjósendur hans. Valgerður og Framsóknarflokkurinn yrðu að leysa sína innbyrðis erfiðleika án þess að draga aðra inn í þá. Björgólfur sagði þetta ekki vera spurningu um valdahlutföll, heldur að ávaxta sína peninga. Menn kæmu inn í félög og færu úr þeim aftur, en færu eftir ákveðnum reglum í þessu litla þjóðfélagi. "Það er enginn að tala um að menn ætli að vera til eilífðar í neinu," sagði Björgólfur.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Innlent Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn Innlent Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Erlent „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Innlent Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Innlent Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Innlent Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent Sæta lögreglurannsókn vegna níðsöngva um ísraelska herinn Erlent Fleiri fréttir Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Sjá meira