Ekki standa hjá og horfa á! 26. júlí 2004 00:01
Í fyrra fyrir verslunarmannhelgina skrifaði ég grein sem bar titilinn: Allt nema já þýðir nei! Þar hvatti ég karlmenn á öllum aldri til að virða óskir kvenna og bað þá um að gera ekki neitt nema að þeir fengju skýrt já. Ég bað þá einnig að átta sig á því að nauðgun er óafturkallanlegur glæpur sem leggst á sálina hjá konum og körlum sem fyrir henni verða. Nauðgun getur fylgt sjálfsfyrirlitning af verstu gerð sem hefur áhrif á allt samfélagið þegar til lengri tíma er litið. Lengi hefur verið barist gegn nauðgunum undir slagorðinu: Nei þýðir nei. Ég vona að sú barátta hafi skilað árangri en betur má ef duga skal. Um verslunarmannahelgar hefur þjóðin sætt sig við ákveðinn fjölda nauðgana. Slík sátt gengur ekki! Því hvet ég alla sem ætla á útihátíðir um helgina til að hafa augun hjá sér. Þegar ég hugsa til unglingsáranna hefði ég örugglega getað stöðvað tvær eða fleiri nauðganir þar sem ég horfði á unga drengi ganga inn í herbergi hjá áfengisdauðum stúlkum án þess að hugsa meira um það. Ekki standa hjá og horfa á! Ef þú sérð eitthvað grunsamlegt á seyði skaltu láta þá vita sem geta gert eitthvað í málinu. Nauðganir ættu aldrei að vera eitthvað sem við sættum okkur við. Aldrei!
Heilsa Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Fleiri fréttir Settu tærnar upp í loft og fengu knús „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira