Skoðun

Gulur septem­ber, bylting fíflanna

Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar

Gulur september er árvekniátak um geðheilbrigði, geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Í september beinum við sjónum okkar að mikilvægi þess að hlúa að okkur sjálfum og hvert öðru, sýna samkennd og muna að hrósa hvert öðru. Guli liturinn táknar meðal annars kærleik, lífskraft og von og minnir okkur á að staldra við, taka eftir andartökunum og vera til staðar fyrir hvert annað.

Skoðun

Kominn tími til að tengja

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi árið 2022. Markmið laganna voru að ýmis kerfi sem þjóna börnum tali betur saman. Að börn og fjölskyldur fái aðstoð fyrr og þurfi ekki sjálf að bera ábyrgð á því að tengja saman skóla, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og barnavernd.

Skoðun

Orða­val mótar líðan okkar og upp­lifun

Ingrid Kuhlman skrifar

„Ég verð að fara á fund.“ „Ég þarf að svara þessum tölvupóstum.“ „Ég verð að elda kvöldmat.“ Kannski eru þetta saklaus orð. En hvað ef þau gera meira en við höldum? Hvað ef þau auka álag og draga úr vellíðan?

Skoðun

Snúum vörn í sókn

Bjarni Fritzson,Hafrún Kristjánsdóttir,Magnea Gná Jóhannsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifa

Niðurstöður PISA voru birtar í vikunni og þar er ýmislegt sem við getum glaðst yfir. Ísland er meðal efstu þjóða í þrautseigju nemenda, félagslegum tengslum í skóla, sjálfstjórn í námi og stuðningi kennara að mati nemenda og hér mælist einelti lítið.

Skoðun

Takk Inga Sæ­land

Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar

Í mörg ár hef ég barist fyrir bættum kjörum og aðbúnaði eldra fólks. Sem varaþingmaður í stjórnarandstöðu skrifaði ég ótal greinar og flutti ræður á fjölda funda til að vekja athygli á þeirri óásættanlegu stöðu sem ríkti í málefnum eldri borgara. Sérstaklega þeim skorti sem var á hjúkrunarrýmum. Það var á brattann að sækja og stundum var eins og talað fyrir daufum eyrum stjórnvalda.

Skoðun

Niður­skurður í borginni - mann­virðing?

Skúli Helgason skrifar

Þær skipulagsbreytingar með fjöldauppsögnum, sem nýr meirihluti borgarstjórnar keyrði í gegn á aukafundi borgarráðs fyrir hálfum mánuði eru alvarleg atlaga að grunnþjónustu við börn, ungmenni og viðkvæma skjólstæðinga skóla, frístundastarfs og velferðarþjónustunnar í borginni. Á sama tíma er grafið undan merku starfi við uppbyggingu nærþjónustu borgarinnar undanfarna áratugi og hugmyndafræði miðstýringar innleidd á kostnað dreifstýringar og valdeflingar íbúa í sínu nærumhverfi.

Skoðun

Stjórn­völd þurfa að tala skýrar um ETS

Hrafnhildur Bragadóttir skrifar

Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) hefur verið nokkuð til umræðu að undanförnu, meðal annars í aðdraganda nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.

Skoðun

Að virða niður­stöðu sem manni líkar ekki

Erna Bjarnadóttir skrifar

Tíu dögum eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst skrifaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Helen McEntee, utanríkis- og viðskiptaráðherra Írlands, sem fer nú með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins. Þar sagði hún að ríkisstjórnin virti niðurstöðuna og myndi því ekki beita sér fyrir því að aðildarviðræður yrðu hafnar að nýju. Jafnframt tók hún fram að staða aðildarferlis Íslands héldist óbreytt.

Skoðun

Bætir tækni í kennslu­stofunni nám?

Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar

Því meiri tækni sem er innleidd í skólum, því lakari verður námsárangur barna. Þetta á ekki bara við á Íslandi, heldur í nánast öllum OECD-ríkjum.

Skoðun

Gervigreindin alls staðar

Gauti Kristmannsson skrifar

Gervigreindarþýðingar hafa verið í fréttum í þessari viku, Síminn kveðst ætla að nota gervigreind til að þýða erlent efni sitt og síðan fer menntamálaráðherra mikinn um að hægt sé að þýða erlent námsefni með gervigreind eins og það kosti ekki neitt.

Skoðun

Helmingsafsláttur af mennskunni

Arndís Þórarinsdóttir skrifar

Ráðherra barna- og menntamálaráðherra, Inga Sæland, sat fyrir svörum í Kastljósi í gær, í tilefni af hraksmánarlegri útkomu okkar Íslendinga í PISA-könnuninni. Öll ljós blikka, ástandið er alvarlegt, það hefur lengi verið varað við þessu. Allar þessar verstu spár hafa enda ræst - tölurnar sýna að málin hafa þróast á versta veg. Við erum að svíkja börnin okkar um almennilega menntun.

Skoðun

Hvað borga ferða­menn fyrir nýtingu náttúru og inn­viða?

Jóhannes Þór Skúlason skrifar

Fjárlög fyrir árið 2027 voru kynnt á mánudagsmorgunn, við gleðileik ráðherra en litla alþýðuhylli. Áform um gríðarlegar skattahækkanir sem munu snerta alla anga ferðaþjónustu ollu þar gríðarlegum vonbrigðum, enda hefur atvinnugreinin viljað vinna með stjórnvöldum að öðrum og jákvæðari leiðum til að auka skatttekjur samfélagsins af ferðaþjónustu til framtíðar.

Skoðun

Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi

Stefán Jón Hafstein skrifar

Engin greining á stöðunni á íslenskum fjölmiðlamarkaði stenst skoðun án þess að benda á að íslenskir miðlar eiga nú í harðri alþjóðlegri samkeppni um athygli og fjármuni landsmanna. Þar hallar mjög á íslenska miðla og má líkja stöðunni við algjöran markaðsbrest.

Skoðun

The EU’s reduced attractiveness for prosperous countries

Carl Baudenbacher skrifar

Djoomart Otorbaev, the former Prime Minister of Kyrgyzstan, in a LinkedIn post after the referendum, described Iceland’s vote as giving Europe’s Eurosceptics new momentum. In his view, the result was not a rejection of Europe, since Iceland is already deeply integrated through the internal market and Schengen, but a rejection of the assumption that deeper European integration must culminate in EU membership. 

Skoðun

Á­byrgðin er okkar allra

Valdimar Víðisson skrifar

PISA-niðurstöðurnar sem birtust í gær kalla á ábyrga umræðu. Árangur íslenskra nemenda í lesskilningi, stærðfræði og náttúruvísindum er undir meðaltali OECD og þróunin undanfarin ár er áhyggjuefni. Niðurstöðurnar 2025 staðfesta að sá mikli samdráttur sem varð milli áranna 2018 og 2022 hefur ekki gengið til baka.

Skoðun

Hvar á gervi­greind að vinna fyrir hið opin­bera?

Karl Steinar Óskarsson skrifar

Fyrstu verkefnin ættu að vera að lesa, flokka og tengja upplýsingar. Ákvörðunin verður áfram hjá starfsfólkinu. Fyrir opinberar stofnanir liggur verðmætasta notkunin á gervigreind í að lesa mikið efni, finna það sem skiptir máli og undirbúa mál þannig að starfsmaður geti tekið betri ákvörðun.

Skoðun

Ferða­þjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjár­laga

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar

Frumvarp ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um fjárlög fyrir árið 2027 liggur nú fyrir. Það hefur vart farið framhjá neinum. Ríkisstjórnin hreykir sig af því við hvert tækifæri sem gefst að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður á næsta ári.

Skoðun

Virðis­miðuð vel­ferðarþjónusta

Finnur Pálmi Magnússon skrifar

Fyrir tæpum tólf hundruð árum sigldu nokkur skip norður í haf með óljósa hugmynd um land og ómælt traust á að allt myndi reddast. Við erum enn þessi þjóð.

Skoðun

Skuldadagar í Reykja­vík

Björg Magnúsdóttir skrifar

Það dylst engum að núverandi meirihluti í Reykjavík tekur við erfiðu búi; fjárhagur borgarinnar hefur verið þaninn um langa hríð og ósjálfbær með tilheyrandi biðlistum um alla borg.

Skoðun

Að þora að spyrja og þola svarið

Katrín Þrastardóttir skrifar

Þegar einhver í fjölskyldunni glímir við mikla vanlíðan snertir það allt fjölskyldukerfið. Maki liggur vakandi, foreldri fylgist með hverri breytingu, systkini veit ekki hvort það eigi að spyrja eða gefa rými. Óttinn getur orðið mikill og með honum kemur gjarnan sú tilfinning að þurfa að finna réttu orðin eða gera nákvæmlega réttu hlutina.

Skoðun

Stokkið á (barna)vagninn

Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Það var viðbúið að vinsælt þema í skrifum þessa dagana yrði gagnrýni á fjárlög ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Það er enda óhætt að segja að stórtæk skatta- og gjaldahækkunaráform hafi ekki vakið mikla lukku hjá skattpíndum almenningi og fyrirtækjum í landinu. Ég læt mitt ekki eftir liggja í þessari óánægjubylgju.

Skoðun

Opnum Skála­fell

Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar

Það er barátta í gangi við að opna á ný skíðasvæðið í Skálafelli þrátt fyrir samkomulag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um þá uppbyggingu. Reynslan af Bláfjöllum undanfarin ár hefur sannað að stórbætt aðstaða og nýjar lyftur skila aukinni aðsókn. Það mælir allt með því að byggja einnig upp skíðasvæðið í Skálafelli.

Skoðun

Allir ó­sáttir við PISA – en hvað er hægt að gera?

Fanný Gunnarsdóttir skrifar

Þá höfum við séð nýjustu niðurstöðurnar úr PISA könnuninni sem lögð var fyrir nemendur í 10.bekk 2025. En PISA kannanir eru lagðar fyrir á vegum OECD og byggja á því að nemendur nýti þekkingu sína og rökhugsun við lausn fjölbreyttra verkefna. Það sem kemur fyrst upp í huga minn sem hugsanlegar skýringar fyrir slöku gengi eru vangaveltur um gæði námsefnis, þá leiðsögn sem fagnámskrár eiga að gefa og um fagþekkingu kennara í PISA greinum.

Skoðun

Örvæntingafullir karlar

Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar

Nú þegar september sólin skín finnum við ilm af hausti í norðan golunni og stöku laufblöð feykjast um. Vitum að myrkrið færist nær en vissan um að á eftir vetri kemur vor gefur okkur kjark og þor.

Skoðun

Endur­reisa þarf Kennara­há­skólann

Jón Bjarnason skrifar

Ný Pisa-könnun. Nú er hrópað „frammistaða barna á Íslandi hafi hrunið“. Þeim líður samt vel. Háskólasamfélgið og menntayfirvöld bera hér mikla ábyrgð á menntunarstiginu, en börnin eru þolendur sem bera mistökin til næstu kynslóðar. Þegar Kennaraháskólinn var lagður niður 2008 og námið og þróunarstarfið lagt inn í Háskóla Íslands var við þessu varað.

Skoðun

Loksins úr mínus í plús

Daði Már Kristófersson skrifar

Eftir átta ára samfelldan hallarekstur og 866 milljarða króna uppsafnaðan halla verður ríkissjóður rekinn með afgangi á næsta ári. Þetta eru mikilvæg tímamót. Halli ríkissjóðs jókst mikið í heimsfaraldrinum en hvarf ekki þegar faraldurinn var genginn yfir. Tímabundin útgjöld urðu varanleg og kostnaðurinn hélt áfram að vaxa hraðar en tekjurnar. Sú staða var ósjálfbær og leiddi til þenslu.

Skoðun