Innlent

Það er jóker í spilinu

Skoðanakannanir síðustu vikna virðast benda til þess að sífellt fleiri kjósendur séu búnir að gera upp hug sinn fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eftir því sem hlutfall óákveðinna fer lækkandi. Þá virðist einnig sem hægt og rólega saxist á það forskot sem já-hliðin naut þegar mælingar hófust fyrst eftir að tilkynnt var um þjóðaratkvæðið.

Innlent

Brotist inn í Barnaloppuna

Brotist var inn í verslun Barnaloppunnar að Köllunarklettsvegi í nótt og þurfti að seinka opnun hennar í morgun á meðan rannsóknarstarf lögreglu fór fram.

Innlent

For­tíð og fram­tíð Ís­lands í Evrópu á Sprengi­sandi

Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Þáttur dagsins er helgaður Evrópumálum eins og svo margir þessa dagana en einvalalið gesta mætir.

Innlent

„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“

Hópur Korpúlfa, sem er félag eldri borgara í Grafarvogi, ætlar að hlaupa saman í Reykjavíkurmaraþoninu. Hópurinn safnar fyrir félaginu og félagsstarfinu sem þau skipuleggja. Formaður segir mikilvægt að halda fólki í virkni eftir að það hættir að vinna og mikil áhersla sé lögð á það hjá Korpúlfi að fólk geti fundið sér eitthvað við hæfi.

Innlent

Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla

Breyta á skipulagi við Laugarnesskóla til að tryggja umferð gangandi og hjólandi við skólann og nýtt skólaþorp. Foreldrar kölluðu eftir viðbrögðum borgaryfirvalda síðasta vetur eftir að ekið var á tvö börn á Reykjavegi, skammt frá skólanum og nýju skólaþorpi. 

Innlent

Fjöldi öku­manna á von á kæru

Lögregluþjónar á Lögreglustöð 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, áfengismældu ökumenn í dag. Þá var kallað var eftir aðstoð lögreglu miðsvæðis í Reykjavík þegar farþegi leigubifreiðar neitaði að greiða far sitt en hann má eiga von á kæru fyrir fjársvik eftir athæfi sitt. 

Innlent

Grind­vískir krakkar sneru aftur á völlinn

Grindavík stillti upp liði á Hamingjumóti Víkinga í knattspyrnu sem fram fór í morgun. Er þetta í fyrsta sinn sem Grindavík mætir til leiks í yngri flokkum síðan sumarið 2024 og var gleðin allsráðandi þegar fagnað var í leikslok.

Innlent

Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja

Lokið var við að leggja lögnina NSL-4 að landi í Vestmannaeyjum snemma í morgun. Ekkert verður hróflað við lögninnni á meðan tryggingafélag kannar umfang tjónsins sem varð á henni við lögn um síðustu helgi.

Innlent

Velti allt á því hverjir mæti á kjör­stað

Miðað við nýjustu kannanir bendir allt til þess að þátttakan sjálf muni skipta mestu máli í komandi þjóðaratkvæðagreiðslum að mati prófessors í stjórnmálafræði. Yngra fólk hallist meira að já-inu en sé sömuleiðis talið ólíklegra til að mæta á kjörstað.

Innlent

„Þessa van­líðan þekkir enginn nema að hafa upp­lifað hana“

Sesselja Hreinsdóttir missti son sinn, Þorlák Inga, fyrir um fimm árum. Þorlákur Ingi var 21 árs þegar hann lést í sjálfsvígi jólin 2020. Sesselja segir missinn hafa markað líf sitt og hún hafi lært mikið á þessum fimm árum. Það mikilvægasta sé að enginn takist á við slíkan missi og slíka sorg einn. Hver og einn þurfi samt sem áður að finna sín eigin bjargráð og sinn takt í sorginni.

Innlent

„Klukkan tifar“

„Þeir geta ekki búið til forsendur kjarasamninga eftir á eins og þeir vilja hafa þær,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR. Stjórn félagsins hafi metið stöðuna svo að uppsögn kjarasamninga verði óhjákvæmileg náist ekki fram breytingar á næstu vikum.

Innlent

„Við hefðum viljað sam­ráð frekar en sam­tal“

Formaður Kennarasambandsins segir að kennarar hefðu viljað samráð frekar en samtal um ákvörðun er varðar breytt námsmat í grunnskólum landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur mikill hiti verið á fundum kennara, skólastjórnenda og fulltrúa ráðuneytisins síðustu daga.

Innlent