Sport

Aston Villa hyggst fylla í götin

Aston Villa hyggst styrkja leikmannahóp liðsins fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Liðið seldi nýverið lykilmann í Morgan Rogers fyrir háa fjárhæð til Chelsea og sækist eftir tveimur öflugum leikmönnum.

Enski boltinn

16 ára setti vallarmet á Ís­lands­mótinu

Hinn 16 ára gamli Hjalti Kristján Hjaltason, kylfingur úr GKG, setti vallarmet á nýjum Korpúlfsstaðavelli á Íslandsmótinu í golfi í dag. Hann verður í ráshópi með efstu kylfingum á morgun.

Golf

Dag­bjartur eykur for­ystuna

Dagbjartur Sigurbrandsson jók forystu sína fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík. Hann lék hring dagsins á tveimur undir pari og er með sex högga forystu.

Golf

Framherjaleit Breiðabliks lokið

Breiðablik hefur gengið frá kaupum á Þorleifi Úlfarssyni sem mun leika með liðinu í Bestu deild karla. Blikar hafa verið sagðir í leit að framherja og Þorleifur kemur til liðsins eftir að hafa verið þar síðast í fyrra.

Íslenski boltinn

Grípa í taumana eftir bana­slys

Enska knattspyrnusambandið hefur lagt blátt bann við því að steinsteyptir veggir umkringi velli á Englandi eftir dauðsfall Billy Vigar, fyrrverandi leikmanns í akademíu Arsenal. 

Enski boltinn

Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu

Kolbeinn Finnsson var í byrjunarliði Valerenga og spilaði allan leikinn er liðið laut í lægra haldi gegn toppliði Bodö/Glimt í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lokatölur 2-1 sigur Bodö/Glimt.

Fótbolti

Er­lingur Agnars í FH

Erlingur Agnarsson er mættur til FH í Kaplakrika frá Víkingi Reykjavík og mun spila með liðinu út yfirstandandi tímabil hið minnsta með möguleika á að gera skiptin varanleg í haust. 

Íslenski boltinn

Jorge Messi látinn

Jorge Messi, faðir argentínsku knattspyrnustjörnunnar Lionel Messi er látinn, 68 ára að aldri, eftir langvinn veikindi. 

Fótbolti

Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Ís­landsmótinu í dag

Ríkjandi Íslandsmeistararnir í golfi eru í góðri stöðu nú þegar að Íslandsmótið á Korpúlfsstaðavelli er hálfnað. Aðstæður fyrir kylfinga verða krefjandi í dag en ólíkar þeim sem hafa verið uppi á fyrri hluta mótsins að mati Þorsteins Hallgrímssonar, golfsérfræðings. 

Golf

Íþrótta­manni ársins leið ekki eins og íþrótta­manni

Íþróttamaður ársins 2025, lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir hefur mátt þola mikla erfiðleika frá því að hún varð Evrópumeistari á síðasta ári. Á tímum efaðist um sjálfa sig sem íþróttamann en sér nú fyrir endann á erfiðleikunum, klár í að láta til sín taka á nýjan leik.

Sport

Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald

Undrabarnið JJ Gabriel hjá Manchester United hefur þegar skapað sér nafn og meðbyr á fótboltaferlinum þrátt fyrir að vera enn bara fimmtán ára gamall. Gott dæmi um það er að strákurinn hefur fengið safnspjald úr 24 karata gulli, nokkrum dögum eftir að hann lék sinn fyrsta óopinbera leik með aðalliði félagsins.

Enski boltinn