Hantaveirusmit um borð í MV Hondius

Fréttamynd

Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Co­vid-19

Hantaveirusmit sem upp kom um borð í skemmtiferðaskipinu MV Hondius er ekki upphaf heimsfaraldurs, að sögn heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Heilbrigðisyfirvöld keppast nú við að rekja slóð fjölda fólks sem nýlega fór frá borði úr hollenska skipinu. Alls hafa þrír dáið vegna veirunnar og er talið að að minnsta kosti átta til viðbótar hafi smitast.

Erlent
Fréttamynd

Kort­leggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó

Tugir farþega skemmtiferðaskipsins MV Hondius eru sagðir hafa farið frá borði á St. Helenu í Suður-Atlantshafi þó nokkrum dögum eftir að maður dó þar um borð. Sá hafði smitast af hantaveirunni en eiginkona hans dó skömmu síðar. Nú er mikið kapp lagt á að framkvæma smitrakningu í tengslum við þetta fólk.

Erlent
Fréttamynd

Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanarí­eyja

Þrír farþegar skemmtiferðaskipsins MV Hondius hafa verið fluttir á sjúkrahús í Hollandi, samkvæmt yfirmanni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Hantaveiran fór í dreifingu þar um borð á dögunum en þrír hafa látið lífið og að minnsta kosti fimm hafa veikst. Til stóð að sigla skipinu til Kanaríeyja en ekki hefur orðið að því enn, þar sem ráðamenn þar vilja ekki taka á móti skipinu.

Erlent
Fréttamynd

Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Ís­lands

Áhöfn skemmtiferðaskipsins MV Hondius hefur fengið heimild til að sigla til hafnar á Kanaríeyjum, þótt enn sé óákveðið hvar skipið mun leggja að bryggju. Heilbrigðisráðuneyti Spánar segir að þegar þangað verði komið, verði áhöfn og farþegar skoðaðir, meðhöndlaðir og sendir heim í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina og Sóttvarnastofnun Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Ekki á­hyggju­efni að skipið sé á leið til Ís­lands

Sóttvarnalæknir segir það ekki áhyggjuefni að farþegaskip þar sem þrír eru látnir úr svokallaðri Hantaveiru muni koma hingað til lands samkvæmt núverandi ferðaáætlun þess. Heilbrigðisyfirvöld fylgist vel með stöðunni um borð og ljóst að þegar sé verið að bregðast við.

Innlent
Fréttamynd

Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits

Þrír ferðalangar á skemmtiferðaskipi eru taldir hafa látist vegna smits af hantaveiru á skipinu. Einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi en umrætt skemmtiferðaskip mun leggja leið sína til Íslands seinna í mánuðinum. 

Erlent