Heilskimanir

Fréttamynd

Mark­miðið ekki að höfða til kvíða að­stand­enda

Framkvæmdastjóri Intuens segir samstarf við Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra, hafa verið í góðri trú og í samráði við félagið. Tilgangurinn hafi verið að veita valkost fyrir þá sem sjálfir óskuðu eftir slíkri þjónustu, en ekki að höfða til ótta eða kvíða. Intuens hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að markaðssetja þjónustu sína sérstaklega gagnvart aðstandendum fólks sem greinst hefur með krabbamein.

Innlent
Fréttamynd

Mælir gegn heilskimun Intuens

Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins mælir gegn því að fólk fari í heilskimun hjá fyrirtækinu Intuens. Vísindin séu ekki með fyrirtækinu í liði. Það sé ósiðlegt að fyrirtækið hafi markaðsett sig gagnvart aðstandendum krabbameinssjúkra. 

Innlent
Fréttamynd

„Ekki af hinu góða og lík­legra til að valda skaða“

Formaður Félags heimilislækna gefur lítið fyrir markaðsefni fyrirtækisins Intuens og segir heilskoðanir gera meira slæmt en gott þrátt fyrir nokkrar jákvæðar dæmisögur. Hraust fólk hafi í kjölfar skoðunar hjá fyrirtækinu farið í óþarfa aðgerðir eða meðferð sem hafi valdið því skaða.

Innlent
Fréttamynd

Verður alltaf meyr þegar hann hugsar um lífs­björgina

Fasteignasalinn Júlíus Margeir Steinþórsson var hress, hafði ekki fundið fyrir neinum einkennum og hélt að hann væri stálsleginn. Við segulómskoðun kom í ljós að hann var með krabbamein. Hann fellir tár þegar hann rifjar upp ferlið.

Lífið
Fréttamynd

Intuens vill samning við Sjúkra­tryggingar vegna segulómrannsókna

Fyrirtækið Intuens ehf, sem vakti athygli seint á síðasta ári vegna umdeildra heilskimana, var synjað um samning um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í starfsemi fyrirtækisins. Samkeppniseftirlitið segir innkomu fyrirtækisins hvata samkeppni á markaði, en þegar eru þrjú myndgreiningarfyrirtæki með samning við SÍ. 

Innlent
Fréttamynd

Stöðva ekki starf­semi Intuens

Heilbrigðisráðuneytið telur ekki forsendur til þess að stöðva rekstur Intuens Segulómunar. Það er vegna þess að fyrirtækið gerði grundvallarbreytingar á starfsemi sinni í framhaldi af samskiptum sínum við ráðuneytið og embætti landlæknis.

Innlent
Fréttamynd

Skimun á villi­götum

Nýverið hóf fyrirtæki á Íslandi að auglýsa „heilskimun“ með segulómun til að skima fyrir alls kyns kvillum þar með talið krabbameinum. Greinarhöfundar hafa, fyrir hönd fagfélaga lækna, miklar áhyggjur af þessari þróun og mæla ekki með því að almenningur fari í slíka rannsókn.

Skoðun