Bandaríkin
1 2 3 4 5 6 … 334 ›
Löggunni ekki boðið en mætti tvisvar til Jenner Lögreglan mætti tvisvar óboðin í sjötugsafmæli raunveruleikastjörnunnar Kris Jenner. Bæði barst fjöldi kvartana yfir hávaða frá nágrönnum og svo hafði Jenner teppt götuna með plastrunnum án heimildar. Lífið 11.11.2025 15:42
Leikkonan Sally Kirkland er látin Bandaríska leikkonan Sally Kirkland, sem vann til Golden Globe-verðlauna fyrir hlutverk sitt í myndinni Anna frá árinu 1987, er látin. Hún varð 84 ára gömul. Lífið 11.11.2025 14:29
Reyna að halda sjaldgæfum málmum frá hernum Ráðamenn í Kína leita leiða til að koma í veg fyrir að sjaldgæfir málmar og afurðir úr þeim rati til bandarískrar hergagnaframleiðslu. Það er eftir að Xi Jinping og Donald Trump, forsetar ríkjanna, gerðu samkomulag í síðasta mánuði um að Kínverjar opnuðu aftur á flæði sjaldgæfra málma til Bandaríkjanna, eftir að hafa stöðvað það nánast alfarið. Viðskipti erlent 11.11.2025 14:03
Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Allison Mack, sem dæmd var í þriggja ára fangelsi fyrir aðkomu hennar að kynlífs-sértrúarsöfnuðinum Nxivm, (borið fram Nexium) hefur nú tjáð sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að söfnuðinum, hvernig hún plataði aðrar konur til að taka þátt og dóm sinn. Í nýrri sjö þátta hlaðvarpsseríu segist Mack ekki álíta sjálfa sig saklausa. Hún hafi treyst Keith Raniere, leiðtoga söfnuðarins, fullkomlega. Hún var hluti af söfnuðinum í tólf ár. Erlent 11.11.2025 12:07
Hótar að kæra BBC fyrir einn milljarð dala Bandaríkjaforseti hefur hótað breska ríkisútvarpinu lögsókn upp á milljarð dollara fyrir að hafa skeytt saman tveimur ræðubútum. Forstöðumaður og fréttastjóri miðilsins hafa þegar sagt af sér vegna málsins. Erlent 10.11.2025 23:20
Demókratar reiðir hver öðrum en aðallega reiðir Schumer Margir þingmenn Demókrataflokksins í báðum deildum þings virðast mjög ósáttir við nokkra kollega sína í öldungadeildinni sem greiddu í gær atkvæði með fjárlagafrumvarpi Repúblikana. Atkvæðin gætu leitt til þess að rekstur alríkisins vestanhafs hefjist á nýjan leik en án þess þó að Demókratar fái nokkuð fyrir mótmælin undanfarinn 41 dag. Erlent 10.11.2025 16:45
Kim féll Kim Kardashian féll nýverið á prófi til lögmannsréttinda í Kaliforníuríki. Hún hyggst þó ekki gefast upp enda þekkt fyrir þrautseigju eins og sýndi sig þegar hún náði prófi fyrsta árs laganema í fjórðu tilraun og kláraði lögfræðinám á sex árum. Lífið 10.11.2025 15:48
Ætla ekki að endurskoða rétt samkynhneigðra til að giftast Dómarar við hæstarétt Bandaríkjanna höfnuðu í dag að taka fyrir dómsmál sem ætlað var að fella úr gildi stjórnarskrárbundinn rétt Bandaríkjamanna til að giftast manneskju af sama kyni. Málið á rætur að rekja allt til ársins 2015 þegar sýsluritari í Kentucky neitaði að veita samkynhneigðum pörum giftingarleyfi. Erlent 10.11.2025 15:47
Sögð ætla að leita á náðir Trumps Ghislaine Maxwell ætlar að biðja Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að milda dóm hennar og sleppa henni úr fangelsi. Að óbreyttu á hún að sitja inni til loka ársins 2037 en Demókratar í dómsmálanefnd fulltrúadeildarinnar hafa sent Trump bréf og sagt honum að þetta standi til. Erlent 10.11.2025 12:22
Hafnar ásökunum um dónamyndir og segir þveröfugt farið Leikarinn Jeremy Renner hefur hótað kvikmyndagerðarkonunni Yi Zhou með lögsókn. Ástæðan er ásakanir Zhou um að Renner hafi sent henni óumbeðnar dónamyndir og hótað því að siga landamæraeftirlitinu á hana. Renner segir þveröfugt farið, hún hafi herjað á hann og sent honum urmul óviðeigandi skilaboða. Bíó og sjónvarp 10.11.2025 11:31
Skaut hreingerningakonu sem fór húsavillt Saksóknarar skoða hvort ákæra eigi mann sem skaut hreingerningakonu sem hafði farið húsavillt til bana. Konan var ásamt eiginmanni sínum að þrífa hús í Whitestown í Indianapolis Í Bandaríkjunum í síðustu viku, þegar þau fóru húsavillt og var hún skotin í gegnum útidyr sem hún var að reyna að opna með röngum lykli. Erlent 10.11.2025 11:22
Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur náðað yfir 75 einstaklinga sem voru sagðir hafa átt þátt í aðgerðum til að freista þess að snúa niðurstöðum forsetakosninganna árið 2020. Erlent 10.11.2025 07:52
Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Tuttugu og tveggja ára karlmaður sem nýlega hóf lyfjameðferð vegna áralangrar misnotkunar á ópíóíðum segir þjónustu Reyks hafa bjargað lífi sínu og óttast að ef henni verði lokað muni fjölmargir deyja. Hann hefur nýtt sér þjónustuna vikulega á þessu ári og er edrú í dag. Innlent 10.11.2025 06:47
Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Átta þingmenn Demókrataflokksins í öldungadeild bandaríska þingsins greiddu atkvæði með Repúblikönum þegar gengið var til atkvæðagreiðslu í gærkvöldi um að taka fyrir frumvarp til að greiða fyrir opnun alríkisins. Erlent 10.11.2025 06:28
Forstöðumaður BBC segir af sér vegna misvísandi umfjöllunar Forstöðumaður og fréttastjóri breska ríkisútvarpsins hafa sagt af sér eftir að greint var frá því að við gerð heimildamyndar úr smiðju BBC Panorama hefði tveimur ræðum Donalds Trump verið skeytt saman í klippingu til að láta í veðri vaka að hann hefði hvatt til óeirðanna kenndra við sjötta janúar með beinni hætti en hann í raun gerði. Erlent 9.11.2025 18:31
Aflýsa yfir þúsund flugferðum Meira en þúsund flugferðum til, frá og innan Bandaríkjanna var aflýst í dag. Ríkisstofnunum þar í landi hefur verið lokað frá upphafi októbermánaðar og er rask á flugi undanfarna daga afleiðing þess. Erlent 8.11.2025 23:58
Trump veitir Ungverjum undanþágu Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gert Ungverja undanskilda refsiaðgerðum vegna kaupa á olíu frá Rússlandi, að sögn utanríkisráðherra Ungverjalands. Trump fundaði með Viktor Orbán forsætisráðherra í Hvíta húsinu í dag. Erlent 7.11.2025 22:48
Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði það til skoðunar að veita Ungverjalandi undanþágu frá viðskiptaþvingunum á olíu frá Rússlandi. Hann og Viktor Orbán forsætisráðherra Ungverjalands funduðu í Hvíta húsinu í dag. Erlent 7.11.2025 21:41
Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Talsmaður Kremlar hafnar því algerlega að Sergei Lavrov, utanríkisráðherra, hafi verið settur út í kuldann. Því hefur verið haldið fram að Lavrov hafi fallið í ónáð eftir að ekkert varð af fundi Vladímírs Pútín forseta og Bandaríkjaforseta í Ungverjalandi. Erlent 7.11.2025 15:08
Fundaði með rabbína til að biðjast afsökunar á gyðingaandúðinni Rapparinn Kanye West fundaði með rabbínanum Yoshiayao Yosef Pinto til að biðjast afsökunar á fjandsamlegum ummælum sínum um gyðinga. West sagði það vera blessun að geta axlað ábyrgð. Lífið 7.11.2025 11:27
Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur lagt blessun sína yfir ákvörðun ríkisstjórnar Donald Trump um að hætta að heimila einstaklingum að velja kyn í vegabréfum. Erlent 7.11.2025 06:58
Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks Hluthafar Tesla hafa samþykkt stærðarinnar launapakka handa Elon Musk, auðugasta manni heims. Pakkinn gæti gert hann allt að 122 billjónum króna auðugri á næsta áratug en það fer eftir því hversu vel honum gengur að stýra fyrirtækinu. Viðskipti erlent 6.11.2025 22:43
„Samlokumaðurinn“ sýknaður Bandarískur maður sem gengið hefur undir nafninu „samlokumaðurinn“ undanfarnar vikur var í kvöld sýknaður af tiltölulega smávægilegri ákæru fyrir að kasta samloku í starfsmann Landamæraeftirlits Bandaríkjanna. Það gerði maðurinn, sem heitir Sean Dunn, í miðbæ Washington DC í ágúst. Erlent 6.11.2025 20:22
Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Maður féll í yfirlið í skrifstofu Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu í kvöld. Það gerðist á blaðamannafundi þar sem Trump og ráðherrar hans voru að kynna samkomulag um lækkun verðs á þyngdarstjórnunarlyfjum í Bandaríkjunum. Erlent 6.11.2025 18:52
Stutt stopp Orbans á Íslandi Forsætisráðherra Ungverjalands gerði stutt stopp á Keflavíkurflugvelli í morgun. Hann er á leið til Bandaríkjanna til að funda með Bandaríkjaforseta. Innlent 6.11.2025 15:53
Snýr aftur í leiklistina eftir sjö ára fjarveru Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, mun snúa aftur á stóra skjáinn í litlu hlutverki í nýrri bandarískri kvikmynd. Markle hefur ekki leikið síðan 2018 en hefur verið með kokkaþætti á Netflix. Bíó og sjónvarp 6.11.2025 08:54
Flugumferðarstjórar að bugast og dregið úr ferðum innanlands Ráðherra samgöngumála í Bandaríkjunum, Sean Duffy, varar við því að frá og með morgundeginum gæti komið til þess að draga þurfi úr fjölda þeirra flugferða sem farnar eru frá fjörutíu stórum flugvöllum í Bandaríkjunum svo nemur tíu prósentum. Erlent 6.11.2025 07:36
Tortryggnir í garð tolla Trumps Dómarar hæstaréttar Bandaríkjanna virðast hafa töluverðar efasemdir um það að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi farið að lögum við beitingu tolla sinna á undanförnum mánuðum. Það er ef marka má spurningar þeirra í dag þegar málsmeðferð um lögmæti tollanna fór fram en þá spurðu margir dómaranna lögmann ríkisstjórnar Trumps gagnrýnna spurninga. Erlent 5.11.2025 22:30
Hver er Zohran Mamdani og hvað vill hann? Zohran Mamdani var í gær kjörinn borgarstjóri New York í Bandaríkjunum. Þegar hann tekur við embætti í byrjun næsta árs verður hann yngsti borgarstjóri New York frá 1892 en hann verður einnig fyrsti borgarstjórinn sem fæddist í Afríku og fyrsti músliminn til að sinna embættinu. Erlent 5.11.2025 17:07
Tjáir sig um auglýsinguna umdeildu og stuðning Trump Leikkonan Sydney Sweeney hefur loksins tjáð sig um umdeilda auglýsingaherferð American Eagle frá því í sumar og stuðningsyfirlýsingar Donalds Trump í hennar garð í kjölfarið. Herferðin var sögð innihalda rasíska undirtóna. Lífið 5.11.2025 09:47