Isavia
1 2 3 … 3 ›
Verulegur samdráttur hjá Isavia Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins 2026 var jákvæð um 3.338 milljónir króna samanborið við 4.245 milljónir króna fyrir sama tímabil á síðasta ári. Lækkunin milli ára nemur um 907 milljónum króna. Viðskipti innlent 24.9.2026 16:31
Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Forsvarsmenn Isavia segja að aldrei hafi fleiri stoppað stutt, eða innan við fimm mínútur, í brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll eins og eftir að gjaldtaka hófst í rennunni. Hlutfallið sé nú 97 prósent en hafi áður verið áttatíu prósent. Athugasemdir Félags íslenskra bifreiðaeigenda verði þó teknar til skoðunar og samtal opnað við félagið um málið. Neytendur 22.9.2026 21:42
Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir stuttan gjaldfrjálsan tíma í brottfararrennu Isavia við Keflavíkurflugvöll og hátt refsigjald vera ósanngirni og okur. Félagið kallar hana „ræningjarennuna“ og skorar á Isavia að stækka hana. Neytendur 22.9.2026 07:15
Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Guðmundur Daði Rúnarsson hefur verið ráðinn forstjóri nýstofnaða innviðafélagsins Göng og brú ohf. Tilgangur félagsins er að flýta fyrir samgönguframkvæmdum. Viðskipti innlent 11.9.2026 10:09
Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Lítil flugvél sem notuð er til kennslu- og listflugs hlekktist á í lendingu á Reykjavíkurflugvelli vegna bilunar í lendingarbúnaði. Tveir voru um borð og eru ómeiddir en flugvellinum hefur verið lokað á meðan vettvangur er skoðaður. Innlent 19.8.2026 18:15
Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Þriðja daginn í röð er afar löng röð í öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli. Um tíma náði röðin út á langtímabílastæðin sem eru heldur langt frá innganginum að flugvellinum. Innlent 15.8.2026 09:58
Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Ansi löng röð hefur myndast í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli í morgun. Talið er að fjöldi ferðalanga sem kom hingað til lands til að bera almyrkva á sólu augum í gær, sé nú á leið úr landi. Innlent 13.8.2026 10:33
Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Isavia hefur boðið út ný öryggisleitartæki á flugvellinum sem á að gera starfsfólki kleift að greina meiri massa og vökva. Gert er ráð fyrir að tvö þúsund geti farið í gegnum öryggisleit á einum klukkutíma í nýjum tækjum. Innlent 7.8.2026 08:14
Dekk sprakk við lendingu vélar Dekk flugvélar sprakk við lendingu á Reykjavíkurflugvelli í dag. Búið er að koma vélinni af flugbraut og í öruggt skjól. Innlent 30.7.2026 18:01
„Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fríða Björk Gunnarsdóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa lent á Keflavíkurflugvelli í morgun en miklar tafir voru á flugvellinum. „Ég hef aldrei lent í öðru eins. Mér leið eins og ég væri í réttum nema að ég var kindin, ekki smalinn,“ segir Fríða. Innlent 24.7.2026 17:42
Lokuðu flugbraut vegna dróna Flugbraut á Reykjavíkurflugvelli var lokað um tíma í dag og óskað eftir aðstoð lögreglu þegar dróna var flogið nálægt vellinum í leyfisleysi. Hann sást utan flugvallarsvæðis og var flugbrautin opnuð aftur skömmu síðar. Innlent 12.7.2026 23:56
Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Síðustu ár hafa reglulega borist fréttir af því að fyrirhugað sé að koma á beinu flugi milli Kína og Íslands en nú er útlit fyrir að fréttirnar verði loks að veruleika. „Stutt er í að dagsetning fyrsta flugsins verði kynnt og sala miða hefjist,“ segir Kínverska sendiráðið á Íslandi í svari við fyrirspurn fréttastofu. Innlent 11.7.2026 17:00
Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Flugmaður EasyJet féll í yfirlið við lendingu í Keflavík í morgun og var rauðu óvissustigi tímabundið lýst yfir á flugvellinum. Engan sakaði og gekk lendingin vel, að sögn Isavia. Á annan hundrað voru um borð í vélinni. Flugmaðurinn var með rænu þegar vélin lenti. Innlent 20.6.2026 13:39
Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Upplýsingafulltrúi Isavia segir fyrirhugaða brottfarastöð eiga enga samleið með flugvallarrekstri og að hún eigi alls ekki heima á skilgreindu haftasvæði flugverndar. Stjórnvöld óskuðu eftir fundi í dag. Innlent 16.6.2026 19:37
Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Starfsmenn í dómsmálaráðuneytinu leita að húsnæði á Suðurnesjum undir nýja brottfararstöð, þar sem flóttamenn sem vísa á úr landi verða vistaðir nauðugir. Nýr bæjarstjóri Reykjanesbæjar fagnar því að ríkið hyggist hafa stöðina fjarri íbúabyggð en hann vill helst hafa hana innan flugvallarsvæðisins í Keflavík. Innlent 16.6.2026 14:58
Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Hvorki Isavia né Samgöngustofa settu það í forgang að takmarka röskun á sjúkraflugi þegar flugbraut Reykjavíkurflugvallar var lokað tímabundið vegna trjágróðurs í Öskjuhlíð í fyrra. Ríkisendurskoðun telur báðar stofnanir hafa þvert á móti nýtt takmarkanirnar til þess að knýja fram aðgerðir af hálfu borgaryfirvalda. Innlent 10.6.2026 11:40
Á þriðja hundrað manns æfði viðbrögð við flugslysi Um 250 manns tóku þátt í flugslysaæfingu Almannavarna og Isavia á Akureyrarflugvelli í gær. Líkt var eftir því að farþegaþota hefði farist. Innlent 10.5.2026 10:55
Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi úrskurð Neytendastofu að Isavia hafi gerst brotlegt við lög með því að hefja gjaldtöku í svokallaðri brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll. Neytendur 6.5.2026 17:05
Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Farþegum á Keflavíkurflugvelli brá í brún þegar þeir sáu svartan reykmökk við flugvöllinn í dag. Reykurinn reyndist vera vegna slökkviliðsæfingar. Innlent 23.4.2026 18:25
Ríkissjóður gerði ráð fyrir milljarða arðgreiðslu frá Isavia en fær ekkert Enn eru nokkur ár í að Isavia muni geta farið að greiða út arð til ríkissjóðs en í fjárlögum ársins 2026 hafði verið gert ráð fyrir milljarða arðgreiðslu frá hinu opinbera hlutafélagi. Ekkert verður hins vegar af því og stjórnarformaður félagsins segir ekki að vænta mikillar arðsemi á komandi árum. Innherji 3.4.2026 11:31
Isavia ANS hefur hamskipti og verður Avians Flugleiðsöguþjónusta Isavia yfir Norður-Atlantshafi fékk nýja nafnið Avians í dag. Dótturfélagið hefur fram að þessu gengið undir heitinu Isavia ANS en breytingin er sögð eiga að aðgreina ólíka starfsemi samstæðunnar skýrar og ganga betur í erlenda viðskiptavini. Viðskipti innlent 24.3.2026 09:42
Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Flugi Icelandair til London hefur verið aflýst eftir að flugvélin rann út af akbraut á Keflavíkurflugvellinum í dag. Farþegar hafa setið í vélinni síðan um klukkan 16 en illa hefur gengið að koma dráttarvélum á staðinn. Þá þykir ekki líklegt að það takist að fljúga til Heathrow-flugvallar fyrir lokun. Innlent 23.3.2026 20:23
Flugvél fór út af og öllum brautum lokað Öllum brautum á Keflavíkurflugvelli var tímabundið lokað í kvöld en flugvél Icelandair fór út af akbraut á vellinum þegar henni var ekið frá hliði upp úr klukkan 17. Engan sakaði. Innlent 23.3.2026 17:47
„Það er bara ólöglegt“ Lögmaður Rammagerðarinnar vísar ásökunum Isavia á bug um að forsvarsmenn verslunarinnar fari með rangfærslur um deilu Rammagerðarinnar við ríkisfyrirtækið. Isavia lokaði þremur verslunum Rammagerðarinnar í fyrrinótt þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól. Lögmaðurinn segist búinn að setja inn lögbannsbeiðni til sýslumanns sem verði vonandi afgreidd á morgun, mánudag. Viðskipti innlent 15.3.2026 20:55
Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia segir forsvarsfólk Rammagerðarinnar hafa farið með rangfærslur í fjölmiðlum og að staðan sem upp er kominn sé vegna ákvarðana sem Rammagerðin hafi tekið í sjálf í rekstri sínum. Innlent 15.3.2026 15:07
Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Isavia lokaði í nótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þrátt fyrir að félagið hafi fengið greiðsluskjól samkvæmt dómaraúrskurði. Gerðist þetta í kjölfar þess að framkvæmdastjóri verslunarinnar gagnrýndi framferði flugvallarins og sagðist ætla að fara fram á lögbann á hendur ríkisfyrirtækinu. Innlent 14.3.2026 19:28
Fara fram á lögbann á Isavia Verslunarmenn í Rammagerðinni segjast ætla að fara fram á lögbann á Isavia þar sem ríkisfyrirtækið hafi lokað verslun Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli í leyfisleysi. Isavia telur Rammagerðina skulda í leigu en Rammagerðin segir forsendur leigusamningsins löngu brostnar. Viðskipti innlent 13.3.2026 23:23
Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Hafsteinn Karlsson var á leið til Íslands frá Kaupmannahöfn með konu sinni á fimmtudaginn þegar stefnan var óvænt tekin á Akureyri vegna veðuraðstæðna á Keflavíkurflugvelli. Við tóku um átta klukkustundir af óvissu í komusalnum á Akureyrarflugvelli þar sem mörghundruð manns var gert að bíða í fleiri klukkutíma. Innlent 1.3.2026 20:04
Síðustu strandaglóparnir komust til Keflavíkur í nótt Síðustu farþegar Icelandair sem lentu í töfum vegna hríðarbyls við Keflavíkurflugvöll síðdegis í gær og var því lent á varaflugvöllum voru komnir til Keflavíkur um tvöleytið í nótt. Forstjóri segir leiðakerfi Icelandair hafa verið komið á réttan snúning í morgun og segir starfsfólk hafa unnið þrekvirki. Innlent 27.2.2026 12:03
Sex hundruð fastir á Akureyri eftir að áhafnir runnu út á tíma Um sex hundruð farþegar um borð í fjórum Icelandair-vélum eru enn fastir á Akureyri eftir að fimmtán vélum flugfélagsins var í dag vísað á varaflugvelli vegna óveðurs í Keflavík. Nú eru áhafnir vélanna runnar út á tíma og nýjar áhafnir á leið með flugi frá Reykjavík. Innlent 26.2.2026 21:50